Close

Svona gerum við

Námsefni

Tveir fyrirlestrar og jarðarför

Ég flutti fyrirlestur á hinni árlegu Closing the Gap ráðstefnu í Minneapolis þann 20. okt. síðastliðinn undir yfirskriftinni “Preferably open – definitely free”. Umfjöllunarefnið var opinn og frjáls hugbúnaður í námi og kennslu nemenda með sérþarfir. Flutningurinn gekk með afbrigðum vel þó ég segi sjálfur frá og yfir 100 manns létu sig hafa það að sitja undir herlegheitunum. Ég mæli hiklaust með Closing the Gap ráðstefnunni sem verður án efa að teljast ein sú allra nytsamlegasta þegar kemur að hagnýtingu upplýsingatækninnar í námi og kennslu nemenda með sértækar þarfir. Sjáumst þar næsta vetur.

Helst af öllu opinn – örugglega frjáls

Í erindinu mínu kynnti ég til sögunnar áfanga sem ég hef þróað og kennt undanfarnar þrjár annir við starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti og mun að öllu óbreyttu gera áfram. Í áfanganum fást nemendur við margvíslegan hugbúnað sem allur á það sameiginlegt að vera opinn (open source), frjáls (free software) eða einfaldlega ókeypis. Helstu ástæður fyrir þessari tilhögun eru eftirfarandi:

Peningar af skornum skammti í menntakerfinu og sorgleg staðreyndin er sú að framhaldsskólar landsins hafa því miður ekki burði til þess að fjárfesta í öllum þeim hugbúnaði sem þeir svo sannarlega hafa not fyrir. Þetta er veruleiki sem við í sérkennslunni könnumst allt of vel við en á auðvitað einnig við um aðrar námsbrautir. Þegar svona er komið fyrir eru valkostirnir fáir því ekki viljum við notast við illa fenginn hugbúnað. Í mínu tilfelli felst svarið í opnum og ókeypis hugbúnaði og sem betur fer er úrvalið af honum töluvert og fer vaxandi. Gæði eru heldur ekki vandamál.

Í öðru lagi þá hefur hagnýting opins og ókeypis hugbúnaðar þá ánægjulegu aukaverkan að nemendur mínir geta sótt hugbúnað sem þeir læra að nota í skólanum og sett upp á eigin tölvur. Það skapar mikilvæg tengsl við heimilið þegar nemendur hafa aðgang að hugbúnaði á heimavelli sem þeim er gert að kunna skil á og hafa aðgang að í skólastofunni. Ég þekki allt of vel þá aðstöðu að nýta spennandi en dýrkeyptan hugbúnað í skólastarfi sem nemendur hafa sjaldnast aðgang að nema innan veggja skólans.

Ef ég ætti að lýsa áfanganum sem ég kynnti á Closing the Gap með einu orði þá yrði hugtakið sköpunarkraftur líklegast fyrir valinu. Ég legg áherslu á skapandi notkun hugbúnaðarins sem við vinnum með og það kemur berlega í ljós í verkefnavinnunni. Ég læt glærurnar fylgja hér á eftir svo þið getið fengið smjörþefinn af því sem fram fór í USA.

Vörður vísa veginn

Í gær, 2. nóvember, tók ég þátt í ráðstefnunni “Vörður vísa veginn” og flutti fyrirlestur sem ég nefndi “Hugleiðingar um innleiðingar”. Ráðstefnan var haldin á vegum 3f og var viðfangsefnið upplýsingatækni og menntun. í stuttu máli sagt þá var ég mjög ánægður með ráðstefnuna og erindin sem þar voru flutt. Það er óhætt að óska 3f til hamingju með vel heppnaða ráðstefnu.

Meðal áhugaverðs efnis var umfjöllun Salvarar Gissurardóttur um Second life sýndarheiminn og yfirlit Kolbrúnar Hjaltardóttur um nýja rannsókn sína á inngrip í tölvunotkun í grunnskóla. Þá hafði ég mjög gaman af erindi kennara Háskólans í Reykjavík um þróun upplýsingatækninnar og alvöru leiki (serious games). Ég gat því miður ekki fylgst með öllu því sem vakti áhuga minn en ég hefði viljað hlusta á Vigfús Hallgrímsson fjalla um það sem hann kallaði Opin sjónarmið um UT í skólastarfi. Ég missti einnig af Ellu Jónu segja frá Flúðaskólaleiðinni og Fjólu Þorvaldsdóttur kynna þróunarverkefni í leikskólanum Furugrund svo fátt eitt sé nefnt. Svona er það að geta ekki verið á mörgum stöðum í einu.

Til allrar lukku eru velflestir fyrirlestrar ráðstefnunar nú þegar aðgengilegir á Slideshare.net. Ég veit að Powerpoint glærur einar sér segja ekki alla söguna, ein eins og ég hef áður sagt þá fáið þið vonandi smjörþefinn að því sem þarna átti sér stað. Best er auðvitað að vera á staðnum.

Ég fór einnig í jarðarför í vikunni en ætla svo sem ekki að tjá mig mikið um það.



Tengt efni

Skráðu athugasemd