Þrjár einfaldar leiðir til að varpa Flickr myndasýningum á vef

Skrifað 14. November 2007
Flokkur: Flickr
Ein athugasemd frá lesendum

Eins og sjá má á vef Starfsbrautar Fjölbrautaskólans í Breiðholti birtum við myndir úr skólastarfinu og viðburðum sem því tengjast á Netinu. Myndirnar hýsum við á Flickr netsamfélaginu og vörpum yfir á starfsbrautarvefinn sem knúinn er af Wordpress kerfinu.

Kosturinn við að hýsa myndir á Flickr eru fjölmargir. Í fyrsta lagi er öll umsýsla mynda á Flickr mjög einföld og allir kennarar deildarinnar geta sent inn myndir og sýslað með þær. Umsýsla felur t.a.m. í sér að gefa myndunum nafn og skrá texta og lykilorð (tags) við þær. Einnig er hægt að flokka myndirnar, t.d. eftir viðburðum og búa til smærri söfn. Söfn má skoða sem gagnvirkar myndasýningar og kemur sá kostur sér vel í kennslu þegar myndunum er varpað á tjald eða töflu með aðstoð skjávarpa. Flickr inniheldur því miður enga einfalda leið til þess að varpa þess háttar gagnvirkum sýningum yfir á aðra vefi á sama hátt og hægt er að varpa myndskeiðum af YouTube eða sambærilegum vefjum. Söfnum má hins vegar varpa á aðra vefi með því að nýta þjónustur sem utanaðkomandi aðilar hafa skrifað og gert aðgengilegar á Netinu. Hér varða þrjár slíkar þjónustur kannaðar.

Þrjár einfaldar leiðir til að varpa Flickr myndasýningum á vef

Slideflickr
Slideflickr býður upp á mjög einfalda leið til þess að birta Flickr myndasýningar á hvaða vef sem er. Einungis þarf að gefa upp Flickr notandanafn, nafn á flokk (group) eða slóðina að safni (set) og afrita kóða sem þjónustan býr til ekki ósvipað og þegar myndskeiðum af YouTube og sambærilegum vefjum er birt.

 

FlickrSlidr
FlickrSLIDR svipar mjög til Slideflickr Hægt er að gefa upp slóða að notanda, safni eða flokk, en auk þess einstaka tögum. Þá er einfalt að ákvarða breidd og hæð glærusýningar sem getur komið sér vel. Glærusýningunni er varpað yfir á hvaða vef sem er með því að afrita kóða sem þjónustan býr til.


Created with Admarket’s flickrSLiDR.

PictoBrowser
Ólíkt tveimur fyrrgreindum lausnum þá er PictoBrowser notandaviðmótið er í flash. Eftir að smellt hefur verið á “Click here” hnappinn er gefið upp Flickr notandafn og svo valið hvort birta á myndir úr söfnum (set), myndir sem hafa ákveðið tag (tags) eða myndir úr ákveðnum Flickr hóp (group). Þegar valið hefur verið framkvæmt birtist kóði sem afritaður er á viðkomandi vefinn þar sem birta skal myndasýninguna.

Það er einnig gaman að geta þess að yfir 2 billjónir mynda eru nú hýstar á Flickr. Hér má sjá mynd nr. 2.000.000.000.


Related Post



1 athugasemd við “Þrjár einfaldar leiðir til að varpa Flickr myndasýningum á vef”

  1. Salvör skrifar:

    ótrúlega margar myndir komnar á flickr. Ég skráði mig á það kerfi daginn sem þau opnuðu. Þau Catarine Fake og Stewen sem stofnuðu flickr heilsuðu öllum og voru þarna allan sólarhringinn fyrstu daganna. Ég man að það var bara einn umræðuhópur sem eitthvað hvað að og þetta var meira eins og IRC. Það var mjög gaman, allir voru að prófa þetta, þetta var frábrugðið öllu öðru, þetta var leikur með myndir.
    Þetta var meira eins og myndaleikur fyrst, svo þróaðist flickr yfir að vera svona myndageymslusvæði og margir sniðugir fídusar voru teknir út.

Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman