Nýjungar í Boardmaker 6

Skrifað 18. November 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Fyrir nokkru kynnti Mayer Johnson nýja útgáfu af Boardmaker hugbúnaðinum í Bandaríkjunum, Boardmaker Plus 6.0. Forritið verður selt í Skólavörubúðinni og er væntanlegt þangað í náinni framtíð en í millitíðinni er hægt að sækja 30 daga prufuútgáfu (einungis til í Windows útgáfu) á vef framleiðanda og kynna sér nýjungarnar. Ég gerði einmitt það og komst að eftirfarandi.

Boardmaker Plus 6.0 er í öllum meginatriðum mjög svipaður fyrirrennara sínum ef undanskilin eru örfá ný verkfæri og nokkrir nýir möguleikar við samsetningu efnis. Notendaviðmótið hefur engum breytingum tekið sem er miður því það er frumstætt og frekar takmarkað að mínu mati. Hér á eftir verða útlistaðar helstu nýjungar sem útgáfan hefur fram að færa.

Ritrammar

Ein viðamesta nýjungin í Boardmaker 6.0 felst í svokölluðum ritrömmum (symbolate button tool). Ritrammar eru sérstök tegund af reitum þar sem notendur geta skrifað inn texta og Boardmaker birtir samsvarandi tákn með, þ.e. þegar þau finnast í myndasafninu.

Boardmaker ritrammar

Því miður virka ritrammar ekki sem skyldi nema fyrir þau tungumál sem til staðar eru í Boardmaker og íslenskan er ekki eitt þeirra. Á hinn bóginn er alltaf hægt að bæta íslenskum orðum við myndir í Boardmaker sem er eitthvað sem fjölmargir hafa gert.

Þegar fleiri en ein mynd samsvarar ákveðnum texta í ritramma er hægt að smella á mynd og flakka á milli samsvarandi mynda með F1 lyklinum. Einnig er hægt að smella á einstaka mynd í ritramma (þ.e. þegar ritramma verkfærið er valið) og ákvarða birtingarröð myndanna sem fylgja viðkomandi texta.

Birtingarröðin (sjá mynd að ofan) segir til um hvaða mynd birtist fyrst þegar viðkomandi orð er skrifað í ritramma.

Draga sleppa (drag/drop)

Í Boardmaker 6.0 er einfalt að draga mynd beint úr hugbúnaði, möppu eða af Netinu og sleppa í reit.

Einnig er hægt að draga eina eða fleiri myndir og sleppa í myndasafn Boardmaker og bæta þannig myndunum við myndasafnið. Eftir að myndunum hefur verið sleppt í valgluggann (sjá mynd) opnast gluggi þar sem þeim er gefið nafn/nöfn og raðað í flokk/flokka.

Reitarugl (shuffle buttons)

Þessi nýja skipun í Boardmaker gerir notendum kleift að velja þrjá eða fleiri reiti og rugla innihaldinu í þeim, þ.e. raða því upp á nýtt á handahófskenndan hátt.

Skipunin er framkvæmd þannig að fyrst eru skyggðir þeir reiti sem ætlunin er að rugla og svo er valinn Edit>Shuffle Buttons valkosturinn.

Reitaskipti (swap buttons)

Í Boardmaker 6.0 er einfalt að skipta um innihald tveggja reita með því að halda niðri ALT lyklinum á lyklaborðinu á meðan einn reitur er dreginn yfir á annan. Skipunina er einnig að finna á Edit valseðilinum en flýtiskipunin er miklu mun handhægari.

Við þessa aðgerð skipt á innihaldi tveggja reita, ekki er hægt að velja fleiri en tvo reiti þegar aðgerðin er framkvæmd.

Reitajöfnun (alignment)

Jöfnun (align) felur í sér að hægt er að jafna reiti eða innihald þeirra. Jöfnun á reitum getur einfaldað hvers kyns uppröðun og samstillingu á reitum. Það er einnig mikill kostur að geta jafnað innihald reita, t.d. miðjað mynd lárétt og lóðrétt í reitnum.

Skipanir til að jafna reiti eða innihald þeirra birtast þegar reitir eða innihald þeirra er valið og smellt á hægri músarhnapp.

Óreglulegir reitir

Fram til þessa hafa reitir í Boardmaker allir litið eins út, þ.e. ferkanntaðir og með mismunandi rúnuð horn þegar sá kostur hefur verið valinn. Í Boardmaker 6.0 er hægt að búa til reiti sem hafa hvaða lögun sem er. Til þess er notaður annar af tveim nýjum hnöppum á tækjastiku Boardmaker.

Reitur er búinn til á svipaðan hátt og áður, þ.e. verkfærið er valið og reiturinn dreginn upp. Eini munurinn er sá að þegar hann er teiknaður með hinu nýja verkfæri getur lögunin verið hver sem er. Að öðru leyti er virknin nákvæmlega sú sama og þegar um hefðbundna reiti er að ræða.

Hreyfanlegir reitir (movable buttons)

Boardmaker er hægt og rólega að breytast úr því að vera einungis hugbúnaður til vinnslu á efni til útprentunar yfir í að vera verkfæri til samsetningar á hvers kyns prentuðum og gagnvirkum töflum. Nýja útgáfan inniheldur enn fleiri möguleika til að að „forrita“ gagnvirkar töflur en áður og einn sá skemmtilegasti felst í því að nú er hægt að skilgreina hreyfanlega reiti.

Hreyfanlegir reitir (movable buttons) eru reitir sem hægt er að draga fram og til baka með músinni og sleppa á aðra reiti. Hreyfanlegir reitir tilheyra gagnvirka hluta Boardmaker, þ.e. hlutanum sem er virkjaður með því að velja annað hvort Dynamic Boards>Use eða CTRL+U. Áður en hægt er að skilgreina hreyfanlega reiti verður að kalla skipunina fram. Það er gert með því að velja Dynamic Boards>Show>Movable Button Tool sem birtir nýjan hnapp á tækjastiku Boardmaker.

Nýi hnappurinn (sjá mynd) gerir notanda kleift að skilgreina hreyfanlega reiti og hvað gerist þegar þeim er sleppt á aðra reiti.

Hreyfanlegir reitir gera möguleg verkefni eins og það sem sjá má hér að neðan þar sem markmiðið er að draga alla reiti sem innihalda orð sem byrja á bókstafnum „M“ yfir á ákveðinn reit. Hægt er að ákvarða hvað gerist þegar einstaka reit er sleppt á annan. Í þessu tilfelli birtist texti í textareitnum fyrir ofan stóra reitinn. Textinn sem birtist þar er ólíkur eftir því hvaða reitur verður fyrir valinu.

Hreyfanlegir reitir eru bara einn möguleikinn af fjölmörgum þegar kemur að smíði gagnvirkra verkefna í Boardmaker 6.0.

Niðurstaða

Boardmaker 6.0 er engin bylting en inniheldur nokkrar ágætar viðbætur og á heildina litið er þetta hin sæmilegasta uppfærsla. Persónulega er ég þó farinn að langa eftir almennilegu notendaviðmóti og sjálfsögðum aðgerðum eins og að geta afturkallað fleiri en eina aðgerð.

Kostir

  • Ný verkfæri flýta fyrir og einfalda vinnslu í Boardmaker
  • Draga/sleppa kosturinn er mjög handhægur, t.d. til að sækja myndir af Netinu

Gallar

  • Ekki hægt að afturkalla (undo) nema eina aðgerð. Þetta hefur lengi verið vandamál í Boardmaker og löngu tímabært að lagfæra.
  • Einungis ein tækjastika, t.d. engin tækjastika fyrir textavinnslu.
  • Hlýðir ekki nema örfáum hefðbundnum flýtiskipunum, t.d. ekki hægt að afrita reit með því að halda niðri CTRL (líkt og í Windows) eða ALT (líkt og í Adobe hugbúnaði og fleirum forritum).
  • Það er ennþá jafn leiðinlegt og áður að vinna með fleiri en eina töflu í einu. Þetta er eitthvað sem verður að laga.

Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman