Inngangur að gagnvirku Boardmaker

Skrifað 23. November 2007
Flokkur: Boardmaker
2 Athugasemdir frá lesendum

Boardmaker Plus inniheldur öfluga möguleika til að setja saman og leysa hvers kyns gagnvirkt efni. Gagnvirkt efni er hannað í svo nefndum hönnunarham (Design) sem er í raun hefðbundinn vinnsluhamur í Boardmaker. Gagnvirkt efni er hins vegar virkjað með því að velja Use valkostinn af Dynamic Boards valseðlinum eða með því að velja CTRL+U. Þegar unnið er í gagnvirku Boardmaker efni hverfa allar tækjastikur og allt notandaviðmótið (nema annað sé tiltekið) og verkefnið eitt er sýnilegt á skjánum. Til að birta tækjastikur aftur er einfaldlega slegið á ESC lykilinn á lyklaborðinu eða CTRL+D.

Gagnvirkar töflur

Allt efni sem smíðað er í Boardmaker getur verið gagnvirkt. Gagnvirkni felur í sér að efnið er ekki prentað út heldur unnið á skjánum (eða gagnvirkri töflu) með mús, lyklaborði eða rofum. Þannig er hægt að samþætta myndir, hljóð, texta og aðgerðir notanda á bæði skapandi og skemmtilegan hátt.

Sjáðu t.a.m sýnishornið hér fyrir neðan. Í þessu verkefni er markmiðið að para saman afkvæmi og foreldri. Fyrst er smellt á ungann, t.d. ljónsungan efst í hægra horninu. Þegar smellt er á hann birtist texti og er lesinn upp. Síðan er unginn dreginn með músinni og staðsettur við hlið móðurinnar.

Þetta verkefni er einungis eitt af fjölmörgum sýnishornum sem fylgir útgáfu 6 af Boardmaker, en Plús útgáfan inniheldur einnig gagnvirknikosti. Eins sjá má eru möguleikarnir margir og spennandi.

Samsetning gagnvirks efnis

Gagnvirkt efni er þannig samsett í Boardmaker að skilgreind er ákveðin virkni við hvern reit, þ.e. sem ætlað er það hlutverk að vera gagnvirkur. Boardmaker inniheldur fjölmargar tegundir af gagnvirkni og fleiri í Boardmaker 6 en eldri útgáfum. Hér á eftir verður sýnt hvernig hægt er að búa til einfalt, gagnvirkt verkefni.

Litaðu reitina

Í þessu einfalda verkefni á nemandinn að lita alla reiti sem innihalda ákveðinn tölustaf. Ekki er gert ráð fyrir sérstökum viðbrögðum þegar nemandinn litar rangan reit. Það er hins vegar vel mögulegt.

Fyrsta skrefið er að draga upp einn, sæmilega stóran reit í Boardmaker og staðsetja tölustafinn „1“ í miðju hans með stóru letri (ég notaði 72 punkta).

Næsta skref er að bæta gagnvirkni við reitinn. Þar sem ætlunin er að hafa marga reiti með samskonar gagnvirkni er best að fullvinna einn reit og afrita hann síðan. Hugmyndin er að gera bakgrunnslit reits rauðan þegar smellt er á hann. Til þess að gera reit gagnvirkan er tvísmellt. Opnast þá gluggi þar sem gagnvirknin er skilgreind. Glugginn inniheldur nokkra flipa sem hver geymir ákveðnar tegundir af gagnvirkni. Smelltu á Cool Stuff flipan og svo Set Button Properties sem skilgreinir eigindi reits, s.s. liti og gerir mögulegar breytingar á þeim. Opnast þá nýr gluggi með frekari stillingum.

Í glugganum sem nú opnast eru nokkrir valkostur. Hakaðu við Change button color því ætlunin er að breyta bakgrunnslitnum á hnappnum þegar smellt er á hann. Liturinn er svo valinn með því að smella á Choose Color hnappinn.

Hér verður fyrir valinu rauður litur, en auðvitað má notast við hvaða lit sem er. Taktu eftir textanum í reitnum fyrir ofan, þ.e. „ “. Það er nefnilega einnig hægt að láta einn reit breyta eigindi annars.

Næst er smellt á OK hnappinn til að staðfesta breytingar og svo aftur í næsta glugga.

Nú er reiturinn gagnvirkur. Afritaðu hann því næst lárétt og lóðrétt þannig að til verði tafla sem er 4 x 4 reitir. Breyttu tölustöfunum í reitunum og hafðu þá að handahófi á bilinu 1 – 4.

Prufaðu nú verkefnið með því að velja CTRL+U. Mundu að slá á ESC lykilinn á lyklaborðinu eða CTRL+D til þess að skipta yfir í hönnunarham.


Related Post



2 athugasemdir við “Inngangur að gagnvirku Boardmaker”

  1. Steinn E. Sigurðarson skrifar:

    Ekki vill svo skemmtilega til að þetta forrit sé IMS-LD samhæft?

    Maður rembist við að fylgjast með hvernig öllum þessum blessuðu stöðlum gengur að útbreiðast.. Ekki að undanfarin ár hafi fyllt mann mikilli bjartsýni.

  2. sfjalar skrifar:

    Nei þetta er ekki IMS-LD samhæft. Efni sem unnið er í þessu forriti er annað hvort prentað út eða leyst í forritinu sjálfu.

Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman