Ný útgáfa af Camtasia - eldri útgáfur ókeypis

Skrifað 01. December 2007
Flokkur: skjákennsla
3 Athugasemdir frá lesendum

Techsmith hefur kynnt til sögunnar glænýja útgáfu af Camtasia hugbúnaðinum og býður af því tilefni öllum sem áhuga hafa að sækja eldri útgáfur af bæði Snagit og Camtasia endurgjaldslaust á vef fyrirtækisins.

Camtasia er vafalítið einn algengasti hugbúnaðurinn til að taka upp og setja saman skjákennslu/skjávarp hvers konar. Camtasia er vinsælt verkværi til að taka upp “lifandi” kennsluefni og fyrirlestra enda getur forritið tekið upp allar aðgerðir notandans á skjánum og hentar því vel til slíkra verka. Camtasia má einnig nota til að breyta Powerpoint skjölum yfir á flash snið til birtingar á vef.

Snagit er fyrst og fremst ætlað til að taka skjámyndirw og vinna með þær, s.s. stækka eða minnka, bæta við skýringartexta eða táknum. Skjámyndir sem unnar eru í Snagit eru nýttar í prentefni jafnt sem birtingar á skjá.

Nýjungar í Camtasia 5

Eins og vænta mátti þá inniheldur Camtasia 5 fjölmargar nýjungar, flestar reyndar minniháttar en nokkrar sem eiga vafalaust eftir að auka notagildi hugbúnaðarins til muna og væntanlega falla notendum vel í geð. Hér á eftir verður fjallað um þær helstu.

Upptökur

Í nýrri útgáfu er einfaldara en áður að afmarka svæði á skjánum til upptöku og getur Camtasia lagað upptökusvæðið að einstaka gluggum eða forritum. Camtasia “leggur einnig á minnið” fyrri stærðir upptökusvæða en það er kostur sem örugglega á eftir að koma sér vel. Camtasia getur einnig lagt á minnið staðsetningu bendils þegar upptaka er stöðvuð tímabundið með pásuhnappnum.

Skjámynd úr Camtasia 5

Smartfocus

Nýr eiginleiki í Camtasia gerir notendum kleift að vinna á einfaldan hátt með stóra myndfleti, þ.e. myndfleti sem ná yfir allan skjáinn í hárri upplausn og láta Camtasia sjá um að “beina sjónum” að þeim hluta myndarinnar sem máli skiptir. Smartfocus er ein mikilvægasta nýjungin í Camtasia 5 og að mínu viti sá eiginleiki sem gerir hina nýju útgáfu helst aðlaðandi. Hér fyrir neðan má sjá stutta skjásýningu sem var tekin í fullri skjástærð en vistuð í mun minni stærð til birtingar á vef án nokkurrar eftirvinnslu.

Expresshow

Einn stærsti gallinn við Camtasia og stöðugt umkvörtunarefni notenda hefur í gegnum tíðina verið hversu erfitt er að varpa efni úr forritinu á Netið. Algengasta skráarsniðið til birtinga einfaldra skjásýninga á vefnum er flash og eru velflestir netverjar vanir því að geta birt slík myndskeið t.a.m. frá vefjum eins og Youtube eða Google Videos án nokkurra vandkvæða á hvaða vef sem er. Camtasia hefur á hinn bóginn hingað til flækt málin verulega með því að mynda fjölmargar skrár sem notendur verða að hlaða öllum á vefsvæði sín vilji þeir gera skjásýningar aðgengilegar alheimi. Expresshow valkosturinn kemur til móts við notendur með því að mynda eina skrá (fjórar reyndar en hægt að notast við eina á vefnum) sem einfalt er að birta á hvaða vef sem er. Lausnin er ekki alveg eins einföld og sveigjanleg og ég vildi sjá hana en engu að síður til bóta.

Veiki hlekkurinn

Screencast.com vefurinn er enn sem áður veikasti hlekkurinn í þeirri keðju sem Techsmith er að reyna að mynda með vöruúrvali sínu, en þar er á ferðinni afspyrnuslöpp tilraun til að hýsa og miðla skjákennslu. Í samanburði við vinsæla þjónustu eins og Youtube er Screencast.com einfaldlega ónothæfur vefur og lítið meira um það að segja.

Ókeypis eldri útgáfur

Í kjölfar útgáfunnar á Camtasia 5 hefur Techsmith ákveðið að opna aðgang að eldri útgáfum Snagit og Camtasia og gefa netverjum kost á að sækja þær endurgjaldslaust á vefinn. Væntanlega er þessi aðgerð framkvæmd í þeirri trú að reynsla notenda af þessum hugbúnaði verði til þess að þeir fjárfesti í nýju útgáfunum. Ég get allavega sagt fyrir mig að ég nota bæði Snagit og Camtasia töluvert.


Related Post



3 athugasemdir við “Ný útgáfa af Camtasia - eldri útgáfur ókeypis”

  1. Salvör skrifar:

    frábært að heyra að eldri útgáfur af þessum forritum sé ókeypis. Þetta er einmitt það sem kennaranemar þurfa.

  2. Reynir skrifar:

    ég fór á síðuna til að ná í lykilinn, en þar fann ég hann ekki. Eingöngu virtist vera um að ræða 30-day-trial-version…. Sumsé ekki frítt, eða er ég að misskilja big time

  3. sfjalar skrifar:

    Samkvæmt upplýsingum á vef Techsmith var um að ræða tilboð sem nú er runnið út.

Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman