Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar hefur sett saman handbók um notkun opna teikniforritsins Paint.net. Líkt og Paint.net hugbúnaðurinn þá er handbókin er öllum opin og aðgengileg án endurgjalds.
Ég hef áður fjallað mjög á jákvæðu nótunum um Paint.net teikniforritið, en þar er á ferðinnni öflugur hugbúnaður til myndvinnslu í ætt við Photoshop, þó skiljanlega ekki alveg í sama gæðaflokki.
Ég hef áður fjallað mjög á jákvæðu nótunum um Paint.net teikniforritið, en þar er á ferðinnni öflugur hugbúnaður til myndvinnslu í ætt við Photoshop, þó skiljanlega ekki alveg í sama gæðaflokki.

Ég hvet kennara sérstaklega til þess að kynna sér vel Paint.net. Forritið er kjörinn valkostur í skólastarfi, ekki síst núna þegar íslensk handbók er komin út.
Hér er hægt að sækja Paint.net teikniforritið og handbókina má sækja á pdf sniði á vef Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.



Hæ
Þetta er alveg frábær viðbót í skólann þetta forrit, ég ætla sko að demba því inn og láta krakkana nota það.
kveðja Ella Jóna