Steldu þessari kvikmynd

Skrifað 10. December 2007
Flokkur: Almennt
Ein athugasemd frá lesendum

Steal This Film er fyrri hluti áhugaverðrar heimildamyndar þar sem rakin er saga sænska skráardeilisamfélagsins PirateBay, heimsins stærsta torrentvefjar og 177. vinsælasta vefjar heims samkvæmt Alexa.

Í myndinni eru mikið gert úr aðgerðum lögreglunnar sænsku, þann 31. maí 2006 þegar ráðist var til atlögu gegn PirateBay vefnum og allir vefþjónar starfseminnar gerðir upptækir. Eins og frægt er orðið var þetta hin mesta sneypuför og framkvæmd að undirlagi eða vegna þrýstings bandarískra yfirvalda. Í kjölfar aðgerðanna lá PirateBay vefurinn niðri í þrjá daga en samúð með málstað þeirra sem að honum stóðu náði hæstu hæðum í Svíþjóð og víðsvegar um heiminn. Samkvæmt nýjum fréttum á TorrentFreak vefnum er rannsókn lögreglu á málinu lokið og geta rekstraraðilar Piratebay átt von á lögsókn á næstunni. Það verður forvitnilegt í meira lagi að fylgjast með framvindu þess máls en væntanlega telja yfirvöld sig eiga harma að hefna.

 

Steal This Film gerir málstað skráarskiptara ágæt skil á meðan andstæðingar þeirra fá minna vægi í umfjölluninni. Almennt má segja að viðhorf höfunda endurspeglist vel í eftirfarandi orðum eins viðmælanda “Þegar breytingar eru í loftinu þá byggja sumir skjólveggi en aðrir vindmyllur.”

Steal This Film er ekki hlutlaus heimildarmynd og það hallar nokkuð á málstað þeirra sem hallmæla ólöglegum skráarskiptum og þeim stórtæka þjófnaði á höfundarvörðu afþreyingarefni sem á sér stað í dag. Hún er engu að síður ágætt innlegg í umræðu um skráarskipti og höfundarrétt, umræðu sem einkennst hefur allt of mikið af einhliða og oft öfgakenndum málflutningi afþreyingariðnaðarins.

Tónlistar- og kvikmyndaiðnaðurinn er á alvarlegum villigötum ef eitthvað er að marka það sem fram kemur í þessari heimildarmynd. Og reyndar eru höfundar hennar ekki einir um þá skoðun að þar á bæ hafi ráðandi aðilar ekki skilið hvað var að eiga sér stað eða brugðist rétt við aðstæðum. Þetta er ósköp einfalt. Þeir sem trúa því að nokkurntíman verði hægt að uppræta skráarskiptasamfélög eins og PirateBay eða Ístorrent með valdi munu aldrei ná sínu fram. Afþreyingariðnaðinum væri nær að leita leiða til að hagnýta tæknina og byggja vindmyllur ekki veggi.

Er ekki nokkuð til í því?


Tengt efni

1 athugasemd við “Steldu þessari kvikmynd”

  1. Baldur McQueen skrifar:

    Áhugaverð mynd. Gríðarleg aukning á heimsóknum í kjölfar lögregluafskipta hlýtur að vekja vonbrigði yfirvalda. Betri auglýsingu hefðu þeir ekki getað keypt.

    Ég vissi ekki að innrásin á Pirate Bay hefði verið svona gríðarlega tengd æðstu stöðum í Bandaríkjunum. Hótanir kanans hafa eflaust spilað stóra rullu í að móta almenningsálitið – rétt eins og með hvalveiðarnar á Íslandi :-)

    Takk fyrir þetta.

Skráðu athugasemd