Zoomorama – ný leið til að birta myndasýningar á vefnum

Skrifað 12. December 2007
Flokkur: web 2.0
Engar athugasemdir frá lesendum

Zoomorama er nýr vettvangur á Netinu til að hýsa og setja fram myndefni, þ.e. ljósmyndir, teikningar og jafnvel myndskeið af YouTube. Ólíkt Flickr, Smugmug og öðrum álíka þjónustum sem hýsa ljósmyndir þá er Zoomorama öðru fremur skemmtileg leið til framsetningar á efni.

Zoomorama hentar vel til margvíslegra hluta og sker sig úr fjöldanum með því að bjóða upp á myndasýningar sem byggja á samþættingu ljósmynda og myndskeiða auk þess sem hægt er að stækka eða minnka myndir með einum músarsmelli. Ég get vel ímyndað mér að vel komi til greina að birta myndir úr skólastarfinu eða jafnvel til að setja fram námstengt efni með aðstoð Zoomorama. Einnig gæti verið sniðugt að birta verk nemenda á þennan hátt og jafnvel nota þetta í fyrirlestrum í stað Powerpoint?

Zoomorama er netbundin þjónusta og ókeypis enn sem komið er allavega. Til þess að birta efni á Zoomorama þarf hins vegar að sækja og setja upp sérstakan hugbúnað, en hann er aðgengilegur og einfaldur í notkun.

Zoomorama byggir á Mozilla vafranum og keyrir á Windows stýrikerfum. Macintosh útgáfa er í vinnslu.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni