Ég hef verið að lesa grein og grein í þessari ritröð sem nefnist “John D. Catherine T. MacArthur Foundation Series on Digital Media and Learning” og get ekki annað séð en að um vandað og áhugavert efni sé að ræða. Höfundar eru fjölmargir fræðimenn á sínu sviði og viðfangsefnin fjölbreytt enda fjallað um allt frá leikjum til lífsviðhorfa.
Það er ekki á hverjum degi sem háskólaútgáfa á borð við MIT dreifir verkum þennan hátt og hvet ég því alla sem áhuga hafa á viðfangsefninu að kynna sér málið.
Hér er fréttatilkynning MIT í heild sinni (pdf skjal).


