Tryggvi Thayer skrifar áhugaverðan pistil um innleiðingu opins hugbúnaðar í rússneskum skólum.
Það er skammt stórra högga á milli í hugbúnaðargeiranum um þessar mundir enda takast risarnir á markaðnum opinberlega á um hylli almennings. Adobe festi fyrir skömmu kaup á netbundnu ritvinnslunni Buzzword og hefur einnig nýlega opinberað beta útgáfu af netbundinni þjónustu sem þeir nefna Share og er vettvangur þar sem notendur geta hýst og deilt ...
Salvör Gissurardóttir hefur opnað áhugaverðan vef um stafræna stuttmyndagerð.
Fjölmargir fyrirlestrar frá Berkeley háskólanum eru núna aðgengilegir á YouTube.
Ég vinn hörðum höndum þessa dagana að því að setja saman kennslubók og netbundið námskeið í Clicker 5 hugbúnaðinum. Bókin kemur út síðar á árinu en ég stefni að því að opna námskeiðið á dreifnam.is, kennsluvef Fjölbrautaskólans í Breiðholti, um miðjan mánuðinn ef allt fer að óskum.
Getur verið að ég hafi séð þessa auglýsingu í íslenskri útfærslu?
Alþjóðlega K12 Online ráðstefnan hefst þann 8. október nk. Ráðstefnan er ókeypis og skráningar er ekki krafist.
Moodle fær glæsilegan vitnisburð í spánnýrri könnun ElearningGuild þar sem m.a. var reynt að meta ánægju notenda með netbundin námsumhverfi. Þátttakendur í rannsókninni voru rúmlega 2300. Í rannsókninni fær Moodle hugbúnaðurinn mun betri dóma en aðrar og dýrkeyptari lausnir sem innleiddar hafa verið m.a. við íslenska skóla. Hér má nefna bæði Angel og Blackboard/WebCT.
Sketchcast er netbundin þjónusta sem býðurnotendum upp á skemmtilega leið til þess að setja saman og birta einfaldar skissur með eða án tals á hvaða vef sem er.
Nú fer að óðum að styttast í útgáfu 1.5 af Joomla vefumsjónarkerfinu en unnið hefur verið hörðum höndum að þróun hennar undanfarin ár. Joomla 1.5 er mikilvægur áfangastaður í þróun Joomla sem varð til þegar þróunaraðilar Mambo gengu frá borði allir sem einn í kjölfar ósættis um framgang og fyrirkomulag á þróun lausnarinnar. Fyrsta útgáfa ...
Athugasemdir