Close

Svona gerum við

Námsefni

Heimildarmyndir og fréttaskýringar

Á Netinu má auðveldlega finna fjölda vandaðra heimildarmynda og fréttaskýringaþátta sem framtaksamir kennarar geta nýtt sér í kennslu á framhalds- og háskólastigi. Hér tíni ég til nokkrar myndir sem vakið hafa sérstakan áhuga minn.

Heilsufar og næring

Super Size Me (2004)
Morgan Spurlock er sjálfstæður kvikmyndargerðarmaður sem varð frægur að endemum þegar hann hætti allri líkamsrækt og nærðist eingöngu á McDonalds fæði í heilan mánuð. Í heimildarmyndinni Super Size Me lýsir hann þessari ótrúlegu reynslu og þeim áhrifum sem hún hafði á hann bæði líkamlega og andlega. Myndin var útnefnd til Óskarsverðlaunanna 2004 og fær 7.6 í einkunn á IMDB.

 

Mannréttindi og málfrelsi

Shut up and Sing (2006)
Stelpurnar í Dixie Chicks ollu gríðarlegu fjaðrafoki í heimalandi sínu Bandaríkjunum þegar ein þeirra vogaði sér að lýsa því yfir á tónleikum í Englandi að þær skömmuðust sín fyrir að forseti Bandaríkjanna væri frá heimkynnum þeirra í Texas. Viðbrögðin heima fyrir voru engu lík. Myndin fær 7.8 í einkunn á IMDB.

Sex Slaves (2005)
Fréttaskýringarþáttur úr smiðju Frontline um óhugnalegan heim nútíma mansals í austur evrópu þar sem konur frá fyrrum Sovétríkjunum eru seldar í kynferðislega ánauð.

 

Höfundarréttur og skráarskipti

Steal This Film
Steal This Film er fyrri hluti áhugaverðrar heimildamyndar þar sem rakin er saga sænska skráardeilisamfélagsins PirateBay, heimsins stærsta torrentvefjar. Í myndinni eru mikið gert úr aðgerðum lögreglunnar sænsku, þann 31. maí 2006 þegar ráðist var til atlögu gegn PirateBay vefnum og allir vefþjónar starfseminnar gerðir upptækir. Eins og frægt er orðið var þetta hin mesta sneypuför og framkvæmd að undirlagi eða vegna þrýstings bandarískra yfirvalda.

Steal This Film II
Annar hluti fyrrgreindrar heimildarmyndar.

Cood Copy – Bad Copy
Good copy – Bad copy er glæný og vönduð dönsk heimildarmynd þar sem fjallað er um listsköpun og höfundarrétt. Rauður þráður myndarinnar er hinn svo kallaði “Rip mix burn” kúltúr sem ef til vill mætti útfæra á íslensku sem rífa, blanda brenna og snýst um þá listsköpun sem felst í að blanda á skapandi hátt annarra verkum og eigin þannig að úr verði sjálfstætt listaverk.

 

Afþreyingariðnaðurinn

This film is not yet rated (2006)
Í þessari áhrifamiklu heimildarmynd kannar Kirby Dick sjálfskipað kvikmyndaeftirlit bandaríska kvikmyndasambandsins (MPAA) og opinberar fáránleika þess, t.a.m. hvað varðar viðhorf til annars vegar kynferðis og nektar og hins vegar ofbeldis. Athugið að þessi útgáfa myndarinnar inniheldur hefur ekki verið metin af MPAA. Myndin fær 7.6 í einkunn á IMDB.

 

Upplýsingatækni


Revolution OS

Í heimildamyndinni Revolution OS er rakin saga fráls og opins hugbúnaðar frá sjónarhóli þeirra sem tóku virkan þátt í að móta hana, manna eins og Linus Torvalds, Eric S. Raymond, Richard Stallman og Bruce Perens.

 

Ýmislegt

The Boy with the incredible brain (2007)
Sagan af Daniel Tammet er hreint út sagt stórkostleg en hann á mjög fáa sína líka. Tammet getur m.a. lært tungumál á örstuttum tíma og sýndi það eftirminnilega með því að læra íslensku á einni viku. Geri aðrir betur.

Bowling for Columbine (2002)
Michael Moore hlaut Óskarinn fyrir þessa mögnuðu heimildarmynd þar sem hann rannsakar á sinn einstæða hátt þjóðarsálina bandarísku með tilliti til byssueignar og ofbeldis. Bowling for Columbine er örugglega ein þekktasta heimildarmynd síðari tíma og fær 8.2 í einkunn á IMDB.

 

Sálfræði og félagsfræði

The Century of the Self
Vönduð heimildarmynd frá BBC í fjórum hlutum um hvernig sálfræði og áróður hefur verið notaður markvisst til að hafa áhrif á fólk og skoðanir þess.

 

Fleiri heimildarmyndir á Netinu



Tengt efni

Skráðu athugasemd