Enskuleikurinn
English Game er nýtt gagnvirkt námsefni í formi tölvuleiks sem byggir lauslega á hugmyndafræði hlutverka- og sýndarveruleikaleikja. Leikurinn er ætlaður sem stuðnings- eða viðbótarefni í enskukennslu 7 til 10 ára gamalla nemenda og henta vel til sjálfstæðrar vinnu í skólastofunni eða heima meðfram öðru námsefni.
Í leiknum skapar nemandinn persónu, gefur henni útlitseinkunni og fatnað og fer með henni í ævintýraferð þar sem hann þarf að leysa alls konar þrautir og verkefni.
Verkefnin og þrautirnar eru nokkuð hefðbundnar og eiga sér allar samsvörun í hefðbundum pappírsverkefnum, s.s. að setja orð á myndir eða leysa einfalda orðaleiki. Það sem skilur á milli stafræns námsefnis og pappírsvinnu hefðbundinnar er hins vegar endurgjöfin sem er svo mikilvæg við þjálfun eða verkefnavinnu sem þessa.
Námsmarkmið enskuleiksins eru í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla í ensku og er hann unninn með hliðsjón af þeim. Samkvæmt upplýsingum á vef leiksins á það að taka nemanda um 4 – 5 klst að fara í gegnum leikinn í heild sinni. Leikurinn er unnin í forsjá og að frumkvæði Birnu Arnbjörnsdóttur við enskudeild Háskóla Íslands. Gerð hans var m.a. styrkt af menntamálaráðuneytinu.
Enskuleikurinn er Forritaður í Flash og er vandað til allra verka. Hljóð og grafík eru til fyrirmyndar og notendaviðmótið augljóst og einfald í notkun.
Leikurinn boðar vissulega enga byltingu í námsefnisgerð en er engu að síður virðingarvert framtak og þá sérstaklega tengingin við markmið í námskrá. Ég hef reynt hann í kennslu á starfsbraut FB og voru viðtökur nemenda góðar enda þarft efni á ferðinni í kennslu nemenda sem þurfa á að halda myndrænni framsetningu, gagnvirkni endurgjöf og endurtekningu. Það er einnig kostur við að setja námsefni fram á þetta leikrænan hátt að það vill halda nemendum betur við efnið heldur en hefðbundið námsefni á pappírsformi.
Eins og áður sagði þá er vefurinn forritaður í Flash sem því miður getur ekki talist aðgengilegasta leiðin til að birta efni á Netinu. Þegar ég kallaði t.d. fram leiðbeiningar með leiknum gat ég t.a.m. ekki á nokkurn hátt stækkað letrið. Upplýsingar með leiknum eru einungis til á ensku og finnst mér það galli.
Á Menntagátt má finna upplýsingar um annað námsefni sem einnig var styrkt af menntamálaráðuneytinu og var gefið út á síðasta ári.