PicLens - verulega góð viðbót við vefskoðara
PicLens er frumleg viðbót (addin) við Firefox, IE og Safari vefskoðarana sem umbreytir þeim í öflug verkfæri til að birta myndir á mun áhrifameiri hátt en áður hefur verið mögulegt. PicLens er sérstaklega spennandi verkfæri fyrir þá sem hafa aðgang að stafrænum kennslutöflum í skólastofunni.
PicLens er verkfæri til að birta myndir og getur unnið með myndir frá vefjum eins og t.a.m. Flickr, Photobucket, Picasa, DeviantArt, Smugmug, Facebook, MySpace, Google myndaleitinni, Yahoo myndaleitinni og er þá ekki allt upp talið. PicLens getur s.s. ekki birt myndir af hvaða vef sem er, enda fyrst og fremst ætlað til sýningar á myndasöfnum en ekki einstaka myndum. PicLens getur sýnt myndir á tvo ólíka vegu. Réttara væri kannski að segja að Firefox notendur geta sýnt myndir á tvo ólíka vegum með PicLens á meðan þeir sem kjósa aðra vefskoðara hafa einungis um einn kost að velja.
Myndasýningar með PicLens
Eftir að PicLens hefur verið uppsett birtist smár hnappur á myndum þar sem stutt er við forritið og þegar smellt er á hnappinn opnast myndasýning með myndum á viðkomandi vefsíðu.

Myndveggurinn (einungis fyrir Firefox í augnablikinu)
Firefox notendur geta, með aðstoð PicLens, varpað myndum á sýndar þrívíddarvegg og dregið þær fram og til baka og stækkað og minnkað. Þegar tvísmellt er á mynd fyllir hún út í allan gluggan.

Ég er sérstaklega hrifinn af myndveggnum sem er hreint út sagt mögnuð viðbót og stórskemmtilegt verkfæri í kennslustofunni. Á starfsbraut FB nýtum við Flickr til að hýsa og halda utan um ljósmyndir úr skólastarfinu og þar hefur myndaveggurinn slegið í gegn.
PicLens fyrir blogg og vefi
PicLens er einnig til sem viðbót við Wordpress vefumsjónarkerfið auk þess sem hægt er að nýta lausnina til að birta gagnvirkar myndasýningar á nánast hvaða vef sem er. Hér má sjá sýnishorn.