Taktu þátt í mótun nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið á sérstökum umræðuvettvangi á island.is vefnum. [Translate]
Þrír þingmenn Vinstri grænna hafa borið fram tillögu til þingsályktunar um aðgerðir til að auðvelda og auka notkun á opnum hugbúnaði og hugbúnaðarstöðlum. Samkvæmt tillöguni á Alþingi að fela ríkisstjórninni að skipa þverfaglega nefnd um opinn hugbúnað og hugbúnaðarstaðla. Verkefni nefndarinnar verði að leita leiða til að auka hlut opins hugbúnaðar og hugbúnaðarstaðla í stjórnsýslu ...
Hagþenkir stendur fyrir áhugaverðum morgunverðarfundi föstudaginn 29. febrúar kl. 9.00 þar sem fjallað verður um ný lög um námsgagnasjóð og áhrif þeirra á stöðu einkarekinnar bókaútgáfu gagnvart markaði fyrir námsefni í grunnskólum. [Translate]
Myndir og upplýsingar um WorldWide Telescope, nýjustu afurð Microsoft sem kallað hefur fram tár á hvörmum hörðustu bloggara. [Translate]
“Visualizing Information for Advocacy” (pdf skjal) er vandað smárit um upplýsingahönnun sem hægt er að sækja endurgjaldslaust á Netið. [Translate]
Það fór því miður eins og marga grunaði að bandarískur dómstóll myndi dæma Blackboard fyrirtækinu í hag í lögsókn þess gegn kanadískum framleiðanda Desire2Learn námsstjórnunarkerfisins. Niðurstaðan varð ljós sl. föstudag og samkvæmt henni verður Desire2Learn að greiða Blackboard 3.1 milljónir dollara í skaðabætur. Blackboard getur einnig krafist þess að sala á Desire2Learn kerfinu verði bönnuð ...
Fyrir stuttu varð á vegi mínum forvitnileg bloggfærsla eftir Mark nokkurn Shead þar sem hann fjallar um þau tækifæri sem starfsmaður hefur á því að vaxa og efla sig í starfi. Í greininni birtir Shead línurit og hugtakið “Work Zone” til að lýsa stöðu og starfsþróun starfsmanna. Við lestur greinarinnar fór ég að velta fyrir ...
Ég hef tekið saman stutt skjal með leiðbeiningum um hvernig hægt er að búa til verkefni sem nýtir svokallaðar sprettigrindur (Pop-up grids) í Clicker 5 hugbúnaðinum. Verkefnið felst í því að nemendur fá nokkrar myndir á skjáinn og eiga að velja orð á einstaka myndhluta hverrar myndar. [Translate]
Félag um menntarannsóknir (FUM) stendur fyrir ráðstefnu á 100 ára afmæli Kennaraháskóla Íslands. Frekari upplýsingar og skráning hér. [Translate]
Athugasemdir