Ásamt verkefnabankanum má, á vef Flatar, finna skemmtilegan þrautapakka (á pdf sniði) með verkefnum fyrir nemendur í 1. – 10. bekk í grunnskóla. Nemendur hafa kost á því að skila inn lausnum við verkefnin fyrir 12. febrúar nk og verður dregið úr réttum lausnum. Hljóta 3 bekkir á hverju aldursbili verðlaun en allir sem senda inn réttar lausnir fá viðurkenningarskjal.
Í tilefni af degi stærðfræðinnar er einnig kjörið að benda kennurum á hversu auðvelt er að leita eftir námsefni í stærðfræði á Menntagátt:
Ég mæli líka hiklaust með stærðfræðihluta vefsins Rasmus.is sem fjöldi skóla nýtir markvisst í kennslu.
Skólavefurinn birti nýlega vandaðar stærðfræðiskýringar sem hafa þá sérstöðu umfram annað efni sem hér hefur verið kynnt að þar fer blanda af texta, stuttum myndskeiðum og gagnvirkum verkefnum. Stærðfræðiskýringar Skólavefsins eru opnar öllum.
Á vef Námsgagnastofnunar má finna margvíslegt efni til stærðfræðikennslu. Þar á bæ er m.a. lagt til að nemendur spreyti sig á eftirfarandi verkefnum í tilefni af degi stærðfræðinnar:


