Málgarður er í stuttu máli opinn vettvangur á Netinu þar sem nemendur í grunnskólum Garðabæjar eiga kost á því að birta skrif sín, hvort sem þau eru unnin undir handleiðslu kennara eða sjálfstætt. Nemendur sem vinna sjálfstætt er ætlað að fylgja sérstökum leiðbeiningum um ritun og frágang efnis en þær voru því miður ekki fullunnar þegar þetta er ritað.
Ég er sannfærður um ágæti þess að gefa nemendum kost á því að birta verk sín opinberlega hvort sem það er á vef eða með öðrum hætti. Opinber birting gefur verkefnavinnunni raunverulegan tilgang um leið og hún gerir nemendum auðveldara um vik að kynnast verkum hvers annars og bera saman við sín eigin. Það er mín reynsla sem kennari að nemendur kjósa almennt að vinna raunhæf verkefni sem skilja eitthvað áþreyfanlegt eftir sig frekar en endalausar og allt of oft tilgangslausar æfingar.
Vefrit á borð við Málgarð eru hentug leið til að birta verk nemenda. Slíkur vefur er einfaldur í uppsetningu og ódýr í rekstri. Sérstaklega á það við þegar nýttur er opinn hugbúnaður. Málgarður nýtir Joomla vefumsjónarkerfið sem greinilega er að verða mjög vinsæll valkostur í akademísku umhverfi hér á landi. Ég get líka vel hugsað mér að nota WordPress kerfið til viðlíka verka en það kerfi hefur ekki síður slegið í gegn undanfarið.
Ég veit um fleiri vefrit sambærileg við Málgarð sem tengjast grunnskólakennslu en gaman væri ef lesendur hefðu upplýsingar um slíkt.



