Close

Svona gerum við

Námsefni

FSFÍ – Félag um stafrænt frelsi á Íslandi

Laugardaginn 9. febrúar nk. verður haldinn stofnfundur félags um stafrænt frelsi. Fundurinn verður haldinn í Háskóla Íslands, stofu V-257 á annarri hæð VR-II kl. 15:00 – 17:20.

Eftirfarandi mál verða tekin fyrir á fundinum:

  • Ný lög félagsins verða kynnt á fundinum og jafnframt verður kosið í embætti félagsins.
  • Staðan á skipurlagningu fyrirlestra sem haldnir verða í sumar verður rædd.
  • Hin 5 fræknu verkefni verða kynnt af Tryggva Björgvinssyni.
  • Þýðingarkvöld verður rætt.

Á fundinum verður veitt hjálp við að setja upp GNU+Linux dreifingar, t.d. Ubuntu, Fedora og BSD dreifingar ef einhver hefur áhuga á. Einnig verður haldin stutt kynning á frjálsum hugbúnaði.



Tengt efni

Skráðu athugasemd