Google Docs form má tengja við hvaða skjal sem er, þ.e. svo lengi sem um skjal í töflureikni er að ræða. Notendum, þeim sem ætlað er að fylla út formið, þurfa ekki að hafa aðgang að Google Docs eða skrá sig inn. Einnig er hægt að safna svörum beint í gegnum tölvupóst. Svör eru vistuð sjálfkrafa í viðkomandi skjal og niðurstöðurnar þar alltaf aðgengilegar.
Uppsetning á formum í Google Docs er afar einföld:
Fyrst er stofnað nýtt skjal í töflureikni Google Dos og það vistað. Að sjálfsögðu má notast við skjal sem þegar hefur verið stofnað.
Næst er smellt á Share flipan

Þá er hakað við „to fill out a form”

Að því loknu er smellt á “Start editing your form” hnappinn og opnast þá gluggi þar sem forminu er gefið nafn, lýsing skráð og hægt að bæta við spurningum og valkostum að vild. Athugið að ekki er einungis um innsláttarreiti að ræða heldur er hægt að láta notendur haka fyrir fyrirfram skilgreinda valkosti eða velja svör af lista

Þegar formið hefur verið sett upp er smellt á Next, Choose recipients hnappinn til þess að senda formið í tölvupósti eða sækja vefslóðina að því.

Preview hlutinn hægra meginn á síðunni gefur kost á því að forskoða póstinn sem sendur verður til notenda en vinstra megin er ennþá hægt að bæta við notendum og ákvarða frekari eiginleika formsins, s.s. hvort það fylgir í tölvupóstinum eða hvort notendur hafi aðgang að svörum hvers annars. Smellt er á Invite People hnappinn til þess að senda formið eða slóðina að því til viðkomandi aðila.Þar má einnig skrá skilaboð til þeirra sem fylla út formið og birtast þau eftir að niðurstöður formsins hafa verið sendar.
Kostir
Gagnasöfnun með Google Dos er einföld og hagnýt leið til þess að safna upplýsingum. Það er fljótlegt að setja upp form og hver sem er getur nýtt Google Dos án endurgjalds. Ég get vel ímyndað mér að bæði kennara og nemendur hefðu hag af því að nýta sér þennan kost í Google Docs, t.a.m. við gerð stuttra skoðanakannanna eða rannsókna. Almennt er ég á þeirri skoðun að Google Docs mætti nýta mun betur í skólastarfi en nú er gert.
Gallar
Google Dos hefur ekki enn verið þýtt yfir á íslensku og er það stór galli,t .d. fyrir grunnskólastigið. Engin leið er að útlitsmóta formin sem unnin eru á þennan hátt og koma þau því að bestum notum þegar um er að ræða einfaldar, stuttar kannanir eða gagnaöflun þar sem ekki er um að ræða flókin form.


