Ubuntu þýðingarveisla og síðbúinn stofnfundur

Skrifað 13. February 2008
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Helgina 16. – 17. febrúar nk. gefst öllu áhugafólki um frjálsan og opinn hugbúnað tækifæri til þess að aðstoða við að ljúka þýðingunni á Ubuntu (Hardy Heron) Linuxdreifingunni. Veislan verður haldin í VR-II í Háskóla Íslands, stofu 261 á annarri hæð og mun standa frá 10:00 – 18:00 báða dagana. Þetta verður magnað.

Gert er ráð fyrir að þýðendur komi með eigin fartölvur en Reiknistofnun Háskóla Íslands mun lána öllum utan háskólans nettengingu. Boðið verður upp á flatbökur og á staðnum verða aðilar sem eru reiðubúnir að sýna hvernig Ubuntu virkar. Windows notendum er sérstaklega boðið á þennan viðburð. Ég læt smá skjámynd fylgja hér fyrir þá lesendur sem aldrei hafa dýrðina augum litið.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda póst á Tryggva Björgvinsson (tryggvib@hi.is) í því skyni að hægt sé að halda utan um lista af þýðendum (svo að nafn þeirra og framlag gleymist ekki). Þeir sem óska eftir nettengingu þurfa einnig að láta vita af því í sama pósti. Það er nauðsynlegt að skrá sig fyrir hádegi á föstudaginn til þess að hægt verði að útvega nettengingarnar.

Þau ykkar sem endilega vildu en komast einhverra hluta vegna ekki í dúndurþýðingarveisluna (fullt af fólki búið að skrá sig, fólk á RGLUG listanum og annað sem er ekki á listanum) þá er auðvitað hægt að taka þátt í þýðingunni heima hjá sér (eða hvar sem fólk er statt í heiminum). Samræmingin fer þá fram í gegnum IRCið á #rglug rásinni. Orðalista verður svo haldið við á RGLUG kvikunni (wiki) fyrir þá sem koma inn seint (og fyrir framtíðarþýðingu).

Stofnfundi FSFÍ frestað um viku

Ákveðið hefur verið að fresta stofnfundi FSFÍ (Félag um stafrænt frelsi á Íslandi) fram á nk. laugardag, þ.e. 16. febrúar.


Tengt efni

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni