Close

Svona gerum við

Námsefni

Flettu PDF skjölum á Netinu með aðstoð ISSUU

18 Feb Uncategorized | Athugasemdir
ISSUU er ókeypis þjónusta sem gerir birtingu PDF skjala á Netinu að leik einum og skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða myndir, tímarit, handbækur, greinar eða heilu bækurnar. Ólíkt því þegar vísað er beint í PDF skjöl gerir ISSUU netverjum kleift að blaða í gegnum PDF skjöl á gagnvirkan hátt líkt og bók.

Satt best að segja er lítið nýstárlegt við það hvernig ISSUU birtir skjöl á Netinu enda fjölmargir aðilar sem hafa farið þá leið að herma á þennan hátt eftir því þegar bókum er flett á hefðbundinn hátt. Sjáið t.d. þennan bækling Heimsferða. Sérstaða ISSUU felst hins vegar í því hversu aðgengileg og einföld þjónustan er og því hversu auðvelt er að varpa (embedd) efni þaðan yfir á vefinn. ISSUU þjónustan býr einnig yfir félagslegri vídd þar sem hún vísar notendum á annað áhugavert efni samhliða því sem þeir birta sitt eigið.

Svona við fyrstu sýn virðist ISSUU vera kjörin leið til þess að birta PDF efni á Netinu á áhugaverðan hátt en auðvitað má segja að kostirnir umfram vísun í hefðbundin pdf skjöl séu litlir. Ég get ímyndað mér að þjónustan henti ágætlega fyrir kynningarefni eða bæklinga þar sem grípandi framsetning skiptir ekki síður máli en innihaldið. Framsetningin er óneitanlega flott.

Kostir

  • Einfalt og fljótlegt að hlaða inn efni og birta á vef
  • Hægt að varpa efni á vef með einföldum kóða líkt og myndskeiðum af YouTube
  • Hægt að tengja lykilorð við efni og leita eftir efni frá öðrum
  • Hægt að bókamerkja einstaka síður í skjali
  • Hægt að skrá athugasemdir við skjöl

Ókostir

  • Flash er óaðgengilegt fyrir netverja sem styðjast við hjálpartæki eins og talgervla
  • Ekki hægt að afrita texta (sumir sjá það kannski sem kost?)
  • Ekki hægt að vista af vefnum sem PDF

Aðgangur að ISSUU er endurgjaldslaus.


Tengt efni

Skráðu athugasemd