Sprettigrindur í Clicker 5
Ég hef tekið saman stutt skjal með leiðbeiningum um hvernig hægt er að búa til verkefni sem nýtir svokallaðar sprettigrindur (Pop-up grids) í Clicker 5 hugbúnaðinum. Verkefnið felst í því að nemendur fá nokkrar myndir á skjáinn og eiga að velja orð á einstaka myndhluta hverrar myndar.
Ég vinn þessa dagana hörðum höndum að handbók í Clicker 5 hugbúnaðinum, verki sem ég áætlaði að ljúka fyrir síðustu áramót en næ ekki að klára fyrr en í næsta mánuði ef allt gengur að óskum. Ég geri þó ráð fyrir að setja nýjan kafla á Netið í næstu viku fyrir lesendur að skoða.
Í millitíðinni býð ég öllum upp á leiðbeiningar í verkefnagerð með svokölluðum sprettigrindum (Pop-up grids). Sprettigrindur eru nýjung í Clicker 5 og bjóða upp á margskonar skemmtilega möguleika í verkefnagerð. Leiðbeiningarnar eru á PDF sniði og hægt að sækja þær með því að smella á myndina hér að neðan.
