Dómur er fallinn!

Skrifað 26. February 2008
Engar athugasemdir frá lesendum

Það fór því miður eins og marga grunaði að bandarískur dómstóll myndi dæma Blackboard fyrirtækinu í hag í lögsókn þess gegn kanadískum framleiðanda Desire2Learn námsstjórnunarkerfisins. Niðurstaðan varð ljós sl. föstudag og samkvæmt henni verður Desire2Learn að greiða Blackboard 3.1 milljónir dollara í skaðabætur. Blackboard getur einnig krafist þess að sala á Desire2Learn kerfinu verði bönnuð í Bandaríkjunum.

Svo ég rifji aðeins upp þessa sorgarsögu þá var Blackboard veitt í hæsta máta vafasamt einkaleyfi í Bandaríkjunum á grunnþáttum netbundinna námsstjórnunarkerfa árið 2006. Í kjölfarið tók fyrirtækið sig til og lögsótti helsta keppinauta sinna, nefnilega fyrrgreint Desire2Learn sem talið var nýta sér með ólöglegum hætti höfundarverk Blackboard. Óhætt er að segja að með þessum gjörðum sínum hafi Blackboard uppskorið almenna andúð þeirra sem létu sig málið varða.

Eftir dóminn sl. föstudag er ljóst að hver einasti framleiðandi, þjónustu-, og söluaðili netbundinna námsstjórnunarkerfa annar en Blackboard vestanhafs (og reyndar víða því Blackboard hefur sótt um einkaleyfi um allan heim) verður að huga vel að stöðu sinni og framtíð. Óverðskuldað einkaleyfi Blackboard hefur sett fyrirtækið í þá einstöku aðstöðu að geta ekki einungis þvingað skaðabætur frá samkeppnisaðilum heldur krafið þá um greiðslur fyrir afnot af lögvernduðu höfundarverki “þeirra”. Einu aðilarnir sem geta verið öruggir um sinn hag, ef eitthvað er að marka orð Blackboard, eru notendur og þróunaraðilar opins hugbúnaðar, en Blackboard hefur heitið að skerða ekki hár á höfði þeirra.

Blackboard er lang stærsti framleiðandi námsstjórnunarkerfa í heiminum í dag og úrskurðurinn frá því á föstudaginn eykur enn á ægivald þeirra yfir keppinautum sínum á markaði. Ég efast ekki um að viðbrögð Netverja og hins akademíska umhverfis verði öll á sama veg og Blackboard ekki í hag. Einkaleyfi fyrirtækisins er enda fyrst og fremst til þess fallið að hindra eðlilegt og sjálfsagt þróunarstarf, takmarka nýsköpun og koma í veg fyrir opið streymi upplýsinga og fagleg skoðanaskipti.

Stærsti Blackboard notandi á Íslandi er líklegast Kennaraháskóli Íslands. Aðrir Blackboard skólar eru t.d. Verslunarskóli Íslands, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Menntaskólinn í Kópavogi og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar. Þessir aðilar mega í náinni framtíð vel eiga von á hækkandi leyfisgjöldum sem víst eru nógu há fyrir og lélegri þjónustu. Það er segin saga að þegar eðlileg samkeppni fæst ekki þrifist þá leiðir það til hækkandi verðlags og verri þjónustu. Verði ykkur að góðu.


Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Júlí/ágúst hefti Educause Review er komið út. Áhugavert eins og alltaf.
    Ég mæli eindregið með þessum frábæra fyrirlestri með Michael Wesch um miðlalæsi og skólastarf.
    Á stofnfundi rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun var kynntur nýr vefur rannsóknarstofunnar.
    Miðvikudaginn 25. júní kl. 11 verður stofnfundur rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun (RannUM) við Kennaraháskóla Íslands. Stutt athöfn verður í stofu H-001 þar sem undirritaður verður samningur um stofnun og rekstur stofunnar.
  • Gagn og gaman