Close

Svona gerum við

Námsefni

Um aðgerðir til að auðvelda notkun á opnum hugbúnaði og hugbúnaðarstöðlum

Þrír þingmenn Vinstri grænna hafa borið fram tillögu til þingsályktunar um aðgerðir til að auðvelda og auka notkun á opnum hugbúnaði og hugbúnaðarstöðlum. Samkvæmt tillöguni á Alþingi að fela ríkisstjórninni að skipa þverfaglega nefnd um opinn hugbúnað og hugbúnaðarstaðla. Verkefni nefndarinnar verði að leita leiða til að auka hlut opins hugbúnaðar og hugbúnaðarstaðla í stjórnsýslu og útboðum hins opinbera.

Markmið slíkrar nefndar væri að finna leiðir til að draga úr einokun eða fákeppni á hugbúnaðarmarkaði og auka valfrelsi notenda. Einnig er lagt til að nefndin skoði möguleika á því að stofnsett verði sérstök miðstöð sem:

  • aðstoði við notkun á opnum hugbúnaði
  • safni upplýsingum um hvernig opinn hugbúnaður hefur gagnast í stjórnsýslu og rekstri
  • veiti ráðgjöf við kaup á hugbúnaði, lausnum, rekstri og þjónustu á þessu sviði

Tillaga Vinstri grænna sem borin er fram af Steingrími J. Sigfússyni, Kolbrún Halldórsdóttur og Steinunni Þóru Árnadóttur byggir að stórum hluta á skýrslu ParX viðskiptaráðgjöf frá árinu 2005, en þess má geta að í þeirri skýrslu er þróunarverkefni með opinn hugbúnað innan Fjölbrautaskólans í Breiðholti sérstaklega tiltekið sem dæmi um vel heppnaða innleiðinu á opnum hugbúnaði í opinbera geiranum. Í greinargerðinni sem fylgir þingsályktunartillögunni er einnig bent á samskonar áherslur sem finna má í tillögu efnahags- og viðskiptanefndar Norðurlandaráðs.

Ég er að sjálfsögðu afskaplega sáttur með frumkvæði þingmannanna þriggja og vonast svo sannarlega til að það hljóti jákvæða umfjöllun og umrædd miðstöð verði sem fyrst að veruleika. Ég horfi sérstaklega til skólakerfisins í þessu sambandi þar sem ég hef eytt umtalsverðri orku í að kynna kosti opins og frjáls hugbúnaðar. Ég bendi í því sambandi á fyrsta hluta þríleiks míns um opinn hugbúnað í skólastarfi sem birtur var í Netlu, vefriti Kennaraháskólans á síðasta ári. Næsti hluti er væntanlegur innan skamms.


Tengt efni

  • Ekkert fannst

Skráðu athugasemd