Óvænt endalok á OOXML fundinum í Sviss

Skrifað 01. March 2008
Flokkur: Almennt
Engar athugasemdir frá lesendum

Lokið er fimm daga löngum fundi 120 fulltrúa frá 32 af aðildarríkjum ISO samtakanna sem haldinn var dagana 25. – 29. febrúar í Genf í Sviss. Á fundinum var tekist á um athugasemdir tækninefnda aðildarríkjanna vegna ISO/IEC DIS 29500 sem er frumvarp að staðli um skráarsnið. Óhætt er að segja að niðurstaðan komi nokkuð á óvart.

Það var frá upphafi ljóst að verkefnið sem biði tækninefndanna í Sviss yrði allt í senn viðkvæmt, flókið og tímafrekt. Hlutverk þeirra var að taka ábyrga afstöðu til ríflega 1100 breytingartillögur við athugasemdir tækninefnda sem höfnuðu staðlinum á sínum tíma. Til þess höfðu fulltrúarnir einungis fimm daga. Svona eftir á að hyggja mátti segja sér að tíminn til þessa mikilvæga verks hafi verið allt of knappur enda fór svo að einungis var brugðist við tæplega 20% athugasemdanna. Hvernig brugðist var við þessari niðurstöðu var hins vegar engan vegin fyrirsjáanlegt.

Tækninefndir ISO runnu út á tíma í Sviss þegar fjórir fimmtu hlutar vinnu þeirra var enn ólokið. Eðlilegast hefði verið að þær lykju verkinu á einhvern hátt t.d. með öðrum fundi eða þá að staðlinum hefði verið vísað aftur til ECMA til lagfæringa (sem reyndar hefur þegar samþykkt hann). það varð því miður ekki raunin. Þess í stað var ákveðið að hætta allri frekari vinnu við breytingartillögurnar og ganga til atkvæða um staðalinn hálfunninn. Ég skal útskýra þetta aðeins betur og kemur þá vonandi í ljós hversu vond hugmyndin er.

Tækninefndir ISO höfðu í atkvæðagreiðslu á síðasta ári hafnað OOXML staðlinum í fyrri hluta þessa svokallaðs fast track ferli og gert um 3500 athugasemdir við texta hans. Eftir að unnið hafði verið úr athugasemdum tækninefndanna stóðu fyrrgreindar 1100 athugasemdir eftir og átti að afgreiða þær á fundinum í Sviss. Að þeirri vinnu lokinni hafa nefndirnar 30 daga til að taka endanlega ákvörðun, þ.e. ákvarða með atkvæðagreiðslu hvort staðallinn teljist hæfur sem ISO staðall eða ekki. í dag er staðan sú að um 900 breytingartillögur við athugasemdir tækninefndanna eru enn óafgreiddar en tækninefndunum er engu að síður gert að kjósa um staðalinn eins og væru þær allar samþykktar án athugasemda. Gjörningur þessi setur allt ferlið í uppnám og ekki síst með hliðsjón af því að nánast engar af þeim breytingartillögum sem tími var til að fjalla um voru samþykktar athugasemdalaust eða án einhverra breytinga. Þetta er slæm niðurstaða. Slæm fyrir alla.

Höfum eitt í huga. Hlutverk samþykktarferlisins samkvæmt ISO er að tryggja gæði þeirra staðla sem til umjöllunar eru og ná sátt um niðurstöðu sem er öllum til hagsbóta. Augljóst má vera að Þessi markmið náðust ekki á fundi tækninefndanna í Sviss. Næstu 30 daga munu aðildarríkin, þ.e. þau 87 sem áður greiddu atkvæði um frumvarpið, kjósa um staðal sem enn hefur ekki hlotið fullnægjandi meðferð samkvæmt leikreglum ISO. Hvernig má það vera?

Reglur ISO segja að til þess að hljóta samþykki verði staðall að hljóta að lágmarki 2/3 (þ.e. 66.66%) hluta atkvæða tækninefnda (ISO/IEC JTC 1) aðildarríkjanna. Þar að auki mega eigi fleiri en fjórðungur atkvæða vera neikvæður. Í fyrri hluta fast track ferlisins samþykktu 53% nefndanna staðalinn og 26% höfnuðu honum. Ákveði stór hluti (samkvæmt þessu um 13%) aðildarríkjanna því ekki að skipta um skoðun verður staðlinum endanlega hafnað.

Athugið samt að sú niðurstaða kæmi ekki í veg fyrir að Microsoft legði til annarrar atlögu með enn aðra útgáfu af OOXML staðlinum og allt ferlið færi af stað á nýjan leik. Eins og þetta mál hefur þróast trúi ég því að allt geti gerst. En í stuttu máli sagt þá ráðast örlög OOXML eins og hann lítur út í dag á næstu 30 dögum.

Heimildir:


Tengt efni

Skráðu athugasemd