Mannslíkaminn í þrívídd með aðstoð Visible Body
Visible Body er glænýr vefur sem hefur að geyma ítarlegustu sjóngervingu af mannslíkamanum sem til er. Vefurinn er stórkostlegt verkfæri fyrir kennara á öllum skólastigum og auðvitað alla þá sem hafa áhuga á líffræði mannsins.
Í stuttu máli sagt þá er Visible Body gagnvirkt þrívíddarlíkan af mannslíkamanum þar sem hægt er að leita eftir yfir 1700 líkamshlutum og skoða frá öllum hliðum. Þjónustan krefst innskráningar sem er endurgjaldslaus þegar þetta er ritað hvað sem síðar
verður. Við innskráningu þurfa notendur að gefa upp tölvupóst og skilgreina eigið lykilorð. Við fyrstu innskráningu verður notandinn að samþykkja keyrslu á Active-X stýrieiningu og að því loknu sækir vefskoðarinn þrívíddarlíkönin. Getur sú vinnsla tekið nokkurn tíma, allt eftir hraða nettengingarinnar. Líkönin haldast í biðminni vafrans á meðan það er ekki hreinsað.
Enn sem komið er virkar Visible Body einungis með útgáfu 6.0 eða nýrri af Internet Explorer 6.0 vefskoðaranum og er það mikill galli á annars frábærum vef.
Visible Body er einstaklega einfalt. Vinstra megin á skjánum birtist listi yfir líkamshluta þar sem hægt er að velja hvað líkanið hægra megin sýnir. Líkanið má snúa og velta á alla kanta með músinni. Það má einnig staðsetja til með því að halda niðri bilslánni á meðan það er dregið til með vinstri músarhnappi.



March 4th, 2008 at 10:36
Samt fúlt, bara hægt að nota þetta í Internet Explorer. Eru ekki bara risaeðlur sem eru enn að nota þann vafra?
March 4th, 2008 at 9:23
Þetta er alveg stórkostlega flott. Hér get ég gleymt mér tímunum saman og ég vona að sem flestir geti gert það
May 23rd, 2009 at 10:16
langar að sjá allt um mænuna og hrigginn.