Ég heyri svo vel
Nýlega setti ég saman kennsluefni þar sem ég sýni skref fyrir skref hvernig hægt er að vinna með hljóðskrár (mp3) í Clicker 5.0 hugbúnaðinum og nýta í einfaldri verkefnagerð. Leiðbeiningarnar geri ég hér með aðfengilegar öllum Clicker notendum og jafnframt verkefnið sjálft sem þær snúast um.
Eitt af því sem við kennarar á Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti höfum verið að kynna okkur betur á þessari önn er hagnýting hljóðs og hreyfimynda í kennslu og námsgagnagerð. Clicker er kjörinn hugbúnaður til þess að vinna með bæði hljóð og stutt myndskeið og í meðfylgjandi leiðbeiningum er sýnt hvernig hægt er að sækja hljóð á Netið og tengja við reiti. Hvað myndskeiðin varðar þá höfum við notað stafrænar myndavélar brautarinnar til að taka upp stutt myndskeið sem við smíðum svo verkefni í kringum í Clicker. Meira um það síðar.
Í leiðbeiningunum sem þið getið sótt hér á pdf sniði er sett saman verkefni sem ég nefnið Ég heyri svo vel. Sjálft verkefnið má sækja hér á Clicker 5.0 sniði (hugsnlega þarf að smella með hægri músarhnappi og vista sem skrá).
Í verkefninu smella nemendur á mynd af hátölurum sem gefa frá sér ákveðið dýrahljóð, mismunandi eftir því hvar nemandinn er staddur í verkefninu. Þegar nemandinn hefur hlustað á hljóðið sem dýrið gefur frá sér setur hann saman einfalda setningu.