Lífsins bók lokið upp

Skrifað 11. March 2008
Flokkur: Fræðirit
Engar athugasemdir frá lesendum

Fyrir um það bil ári síðan lýsti bandaríski líffræðingurinn E.O. Wilson þeim draumi sínum fyrir ráðstefnugestum TED 2007 að skapa netbundið alfræðirit þar sem vísindamenn og almenningur gætu í sameiningu safnað saman ítarlegum fróðleik um hvert einasta lífsform á jörðinni. Nú hyllir undir að draumurinn verði að veruleika en fyrstu síður alfræðiritsins Encyclopedia of Life voru opinberaðar fyrir skömmu.

Eins og við mátti búast dró þessi lífsins vefur að sér gríðarlegan fjölda gesta þegar hann var opnaður almenningi og reyndar var umferðin svo mikil að hann sligaðist undan álaginu og hrundi með stæl. Ég reyndi mikið að komast inn á vefinn á frumsýningardaginn en án árangur.

Þegar ég loksins náði að berja dýrðina augum blasti við ansi vandaður vefur og þrátt fyrir að innihalda einungis brotabrot af því efni sem honum er ætlað að hýsa eða um 30.000 af um 1.8 milljón skráðum tegundum þá er greinilega um metnaðarfullt og spennandi verkefni að ræða.

Skjámynd af eol.org vefnum

Enn sem komið er, er allt efnið á vefnum unnið af viðurkenndum vísindamönnum en áætlað er að innan fárra mánaða muni almenningur eiga kost á því að taka þátt í þessari mögnuðu þekkingarsköpun. Á næstu fimm árum er takmarkið að færa inn upplýsingar um eigi færri en milljón tegundir lífvera og nýta þau gögn til að skapa nýja þekkingu um fjölbreytileika heimsins. Einnig er það markmið að búa til námsefni fyrir nemendur á öllum skólastigum.

Maður getur varla annað en borið hugmyndina að Encyclopedia of Life saman við Wikipedia alfræðiritið og það er greinilegt að hinu fyrrnefnda er ætlað að sameina kosti Wikipedia en forðast margumrædda galla þess. Ég er því ansi hræddur um að aðkoma almennings verði í minna lagi og hugsanlega meira táknræns eðlis, kannski senda inn myndir eða tilkynna þegar sést til nýrra eða sjaldgæfra dýrategunda. Ég vil þó ekki fullyrða neitt í þessum efnum en það er ljóst að EOL verður vandlega ritstýrð og þá væntanlega með það í huga að tryggja sem áreiðanlegastar upplýsingar.


Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman