Close

Svona gerum við

Námsefni

Bókasníkirinn

Fyrir þá sem þekkja mig vel þá kemur þar varla mikið á óvart þegar ég viðurkenni að bókmenntir eru og hafa löngum verið meðal minna helstu áhugamála. Hitt vita væntanlega færri að ég hef um nokkurt skeið verið virkur meðlimur í BookMooch netbókaklúbbnum. Ég hef nánast ekkert nema gott um þá reynslu að segja.

Líkt og nafnið gefur sterklega til kynna er Bookmooch klúbbur eða félagslegt tengslanet þar sem meðlimir skiptast á bókum. Virknin gæti varla verið einfaldari. Meðlimir skrá bækur sem þeir hafa áhuga á því að lesa á persónulegan óskalista (wishlist) og bækur sem þeir eiga og vilja gefa á gjafalista (inventory). Um leið og meðlimur skráir nýja bók á gjafalista sendir Bookmooch kerfið tölvupóst til allra þeirra sem skráð hafa viðkomandi bók á óskalistann sinn og þá gildir að vera sem fljótastur að svara og tryggja sér bókina. Meðlimir Bookmooch hafa reyndar kost á því að hafna bókabeiðnum og getur slík höfnum t.a.m. verið tilkomin vegna þess að viðkomandi kýs að senda ekki bækur á milli landa eða heimsálfa. Kostnaður er oftast ástæðan þegar þannig er háttar og hef sem ég meðlimur Bookmooch oftar en einu sinni ekki goldið þess að búa á afskekktu Íslandi.

Það væri óskandi að samfélag eins og Bookmooch gæti þrifist alfarið á samvinnu og almennum góðvilja fólks án fastmótaðra laga og reglna, en svo er því miður ekki. Til þess að greiða fyrir samskiptum meðlima og koma í veg fyrir misnotkun er í gildi sérstakt punktakerfi sem virkar þannig að punktar eru veittir þegar meðlimur skráir bækur á óskalista og einnig þegar hann sendir frá sér bók þegar um það hefur verið beðið. Punktar eru einnig veittir þegar bækur hafa borist á áfangastað og fleiri ef sent er á milli landa. Á sama hátt kostar það punkta að óska eftir bókum frá öðrum notendum, en auðvitað einungis ef viðkomandi er reiðubúin að láta viðkomandi bók af hendi.

Ég get staðhæft að Bookmooch þrælvirkar. Ég hef þegar látið af hendi 22 bækur fólks víðsvegar um heiminn og fengið sendar í staðinn 23 stykki. Eini ókosturinn er sendingarkostnaðurinn og hin óþolandi afskiptasemi póstsins íslenska eða tollayfirvalda sem reglulega heimta að ég greiði fyrir sendingar frá Bookmooch líkt og ég væri að kaupa bækurnar af erlendri netverslun. Ég hef að sjálfsögðu svarað slíkum umleitunum neitandi og sem betur fer hafa þau svör verið tekin gild.

Þegar þetta er skrifað má finna á óskalistanum mínum á Bookmooch alls 43 bækur (sjá hér að ofan) en ég hef þann sið að í hvert sinn sem ég rekst á bók sem mig langar að lesa þá skrái ég hana fyrst þar. Þá er bara að vona að innan tíðar berist tölvupóstur með þeim skilaboðum að einhver Bookmooch meðlimur hafi skráð einhverja þeirra á gjafalistann sinn. Ég bíð spenntur.



Tengt efni

Skráðu athugasemd