Sjón er sögu ríkari

Skrifað 26. March 2008
Engar athugasemdir frá lesendum

Ég var með erindi á sameiginlegum starfsdegi starfsbrauta framhaldsskólanna sem haldinn var í Menntaskólanum í Kópavogi í dag. Í erindinu fjallaði ég um hefðbundna kennsluhætti og námsefni og mögulegar leiðir til þess að vinna á skapandi og um leið skemmtilegan hátt með kennslu- og vinnubækur.

Fyrir 20 árum síðan rannsakaði Ingvar Sigurgeirsson rannsakaði kennsluhætti á miðstigi í grunnskólum á Íslandi og komst að þeirri niðurstöðu að þeir samanstóðu fyrst og fremst af skriflegum æfingum (31.3%) úr námsefni og verkefnavinnu í þar til gerðum vinnubókum (46.2%). Nú veit ég ekki hversu mikil breyting hefur orðið á kennsluháttum í grunnskólanum hér á landi frá því Ingvar gerði rannsókn sína en ég hef lúmskan grun um að tiltölulega litlar breytingar hafi orðið þar á svona á heildina litið. Að sjálfsögðu veit ég vel að einstaka kennarar eru að gera magnaða hluti. Hvað framhalds- og háskólastigið varðar held ég að óhætt sé að fullyrða að hefðbundin einstefnumiðlun kennara ráði þar ríkjum sem aldrei fyrr. Ef einhver getur bent mér á rannsókn eða rannsóknir sem sýna fram á annað þá væri það vel þegið.

Auðvitað er ekki gerlegt eða æskilegt að útrýma fyrirlestrum eða kennslubókarkennslu, en það má ýmislegt gera til þess að bæta þessu algengu og vafalítið ofnotuðu kennsluhætti. Og ég skal segja ykkur að á því er full þörf. Ég er t.a.m. sannfærður um að fyrirlestraformið sé einn erfiðasti og vandmeðfarnasti kennsluháttur sem til er krefist mikillar leikni og þjálfunar svo vel megi fara. Það geta allir lesið texta beint af glærum og til þess þarf varla háskólamenntun, en það er heldur engin kennsla.

Svo ég komi mér loks að kjarna málsins þá fjallaði ég í erindi mínu í dagu um nýlegar rannsóknir á námi og námsgögnum og benti á nokkrar leiðir sem hafa reynst mér mjög vel til þess að auðga kennsluna og koma betur til móts við nemendur. Mín sannfæring er nefnilega sú að þarna spili upplýsingatæknin stórt hlutverk og vil ég meina að ég hafi sannreynt það í eigin kennslu. Markviss samþætting tækninnar og hefðbundinna kennsluhátta, hvort sem um er að ræða fyrirlestra eða kennslubókarkennslu, getur að mínu viti haft jákvæð áhrif á bæði nemendur og kennara, nám og kennslu.


Ég vistaði glærurnar sem ég setti saman í tilefni erindisins á Slideshare (sömu og sjá má hér að ofan) og þrátt fyrir að þær segi bara helming sögunnar þá er það vonandi betra en ekkert.


Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman