Moodle í mikilli sókn

Skrifað 30. March 2008
Flokkur: Moodle
2 Athugasemdir frá lesendum

Niðurstöður árlegrar könnunar á vegum “The American Association of Community College’s Instructional Technology Council (ITC)” gefa til kynna stóraukna markaðshlutdeild Moodle námsumhverfisins meðal héraðsháskóla (Community College) meðan vinsældir Blackboard fara þverrandi á þeim bæjum.

Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar “2007 Distance Education Survey Results” er Blackboard ennþá með yfirgnæfandi markaðshlutdeild, eða um 77% sem skiptist nokkuð jafnt á milli Blackboard og WebCT lausnanna. Athygli vekur hins vegar að markaðshlutdeild Blackboard hefur minnkað um 7% á milli ára. Moodle hefur nú yfir 10% markaðshlutdeild en var með undir 4% á síðasta ári. Moodle hefur þannig tvöfaldað markaðshlutdeild sína á einungis einu ári. Angel og Desire2Learn hafa einnig aukið sína hlutdeild. Um 35% þátttakenda voru að íhuga að skipta um netbundið námshumhverfi og gefur það til kynna aukin tækifæri fyrir smærri aðila á markaðinum, s.s. Moodle, Angel og Desire2Learn.

Skýrsluna má sækja í heild sinni á pdf sniði og er hin áhugaverðasta lesning sem inniheldur mun meira en tölur um markaðshlutdeild netbundinna námsumhverfa.

Moodle er í sókn á Íslandi líka

Í þessu sambandi er sjálfsagt að geta þess að Moodle hefur sótt verulega í sig veðrið hér á landi undanfarið. Háskóli Íslands notar Moodle í sínu fjarnámi hvað sem síðar verður og Moodle er einnig meðal þeirra lausna sem Keilir nýtir. Ég hef reyndar heyrt sögusagnir þess eðlis að þeir hjá Keili séu að skoða aðra lausn sem ekki hefur áður verið innleidd hér á landi. það væri fróðlegt að heyra meira af þeim pælingum. Orkuskóli Sameinuðu þjóðanna, The School for Renewable energy Science, nýtir Moodle og hefur góða…

Ágætt, en þó ekki tæmandi, yfirlit yfir Moodle innleiðingar á Íslandi er að finna á moodle.org vefnum. Það er samt greinilegt að þennan lista þarf að uppfæra.


Related Post



2 athugasemdir við “Moodle í mikilli sókn”

  1. Guðjón Hauksson skrifar:

    Sæll Sigurður Fjalar,

    takk fyrir stórskemmtilegan vef. Ég geri hann sjálfsagt að upphafssíðunni minni hjá mér á endanum. En mig langar að spyrja um Moodle hvort einhver hafi byggt inn í hann stuðning við Innuna eða hvort það standi til? Við í MA erum að nota Angel núna og líkar að mörgu leyti mjög vel, en þó er skelfing leiðinlegt að þurfa að búa til alla áfangana og hafa að öllu leyti nýjan notendagrunn en þann sem liggur fyrir í Innunni eða á tölvukerfinu hjá okkur. Ég vildi helst af öllu hafa bara einn notendagrunn.

    Bestu kveðjur,

    Guðjón H. Hauksson, þjónustustjóri tölvudeildar MA.

  2. sfjalar skrifar:

    Veit ekki til þess að það hafi verið gert, en það er eitthvað sem ætlunin er að skoða á næstunni. Ég er sammála þér að auðvitað er langbest er að hafa einn notendagrunn. Ég skal láta þig vita þegar eitthvað gerist í þessum málum.

Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman