Ég spáði nákvæmlega þessari niðurstöðu í bloggfærslu sem ég skráði þann 16. september á síðasta ári. Þar sagði ég orðrétt:
Ég sá reyndar ekki fyrir þau óvæntu endalok sem urðu á samráðsfundi tækninefnda ISO í Sviss fyrr á þessu ári, en mér til málsbóta get ég fullyrt að það gerði heldur enginn annar. Hitt get ég fullyrt að eftir að ég frétti af þeim forkastalegu vinnubrögðum sem þar voru viðhöfð þá missti ég alla tiltrú á ISO stofnuninni sem svo greinilega hefur ekki valdið þessu verkefni. Það þarf mikið að gerast til að það apparat allt öðlist á ný virðingu í samræmi við hlutverk sitt og mikilvægi.
Staðreyndin er sú að farsinn í kringum OOXML hefur opinberað svo greinilega að samþykktarferli ISO er ekki faglegt heldur pólitískt og fullkomlega háð miskunarleysi markaðsaflanna. Í ræðu og riti er lögð áhersla á gegnsætt og upplýst verklag en í reynd stenst ferlið ekki þrýsting risafyrirtækja eins og Microsoft, IBM, Google og Sun sem öll eiga mikilla hagsmuna að gæta á þessum vettvangi.
Meðal þeirra landa sem stuðluðu að endanlegu samþykki OOXML staðalsins eru Danmörk og Noregur sem áður höfðu hafnað honum en skiptu um skoðun á síðustu stundu. Fréttir hafa borist af framgangi nefndarmanna í Noregi og segja þær meira en margt annað um hvaða vinnubrögð þar voru við höfð. Meira um það mál hér. Sorgleg saga af frændum okkar verður að segjast. Og Norðmenn virðast ekki þeir einu með óhreint mjöl í pokahorninu er ég hræddur um.
OOXML er meingallaður staðall á því liggur ekki nokkur vafi, enda hálfkláraður ef miðað er við reglur ISO. Á sínum tíma gerðu alþjóðlegar tækninefndir ISO yfir 1100 athugasemdir við texta hans sem enginn skorið úr um á þessari stundu hvort brugðist verður við á fullnægjandi hátt. Á fyrrgreindum samráðsfundi í Sviss þar sem ætlunin var að vinna úr athugasemdum tækninefndanna eins og lög ISO gera ráð fyrir reyndist tíminn of knappur. Það er því fullkomlega ábyrgðarlaust að samþykkja hann sem fullgildan ISO staðal á þessari stundu.
Í dag stöndum við því uppi með tvo staðla sem ætlað er nákvæmlega sama hlutverkið, þ.e. odf og ooxml. Til eru þeir sem telja þetta ágætis málalok, en ég er ekki einn af þeim. Staðlarnir munu að sjálfsögðu keppa innbyrðis og slíkt staðlastríð er aldrei í þágu notenda eins og dæmin af Betamax og VHS eða BlueRay og HD DVD hafa sýnt okkur.



Til smá huggunar:
– Benoît Jacob
Takk fyrir þettar Már. Vissulega huggun harmi gegn.