Blackboard í verulegum vandræðum

Skrifað 02. April 2008
Flokkur: einkaleyfi
Engar athugasemdir frá lesendum

Einkaleyfisstofa Bandaríkjanna (U.S. Patent and Trademark Office) hefur gefið út bráðabirgðaúrskurð þar sem einkaleyfi Blackboard fyrirtækisins á ákveðnum þáttum námsstjórnunarkerfa er ómerkt. Úrskurðurinn er mikið gleðiefni og gefur loksins vonir um ánægjuleg endalok þessarar sorgarsögu.

Ég hef fylgst með framvindu þessa máls allt frá því Blackboard var úthlutað einkaleyfið árið 2006 og sagði þá orðrétt að því miður yrði að teljast líklegt “að einkaleyfið verði notað sem vopn gegn öllum þeim sem eru svo ósvífnir að ógna markaðshlutdeild Blackboard.” Þetta urðu orð að sönnu þegar upp komst um lögsókn Blackboard á hendur helsta keppinauti sínum, kanadíska fyrirtækinu Desire2Learn. Einkaleyfið og ekki þá síður lögsóknin olli miklu fjaðrafoki í netheimum og hafði m.a. þær afleiðingar að netverjar sameinuðust um að safna heimildum um tilvist þeirra eiginleika námsstjórnunarkerfa sem stjórnendur Blackboard eignuðu sér heiðurinn af, fyrir einkaleyfisumsókn fyrirtækisins í júnímánuði 2000. Þar var af nógu að taka.

Heimildasöfnun netverja hafði því miður takmörkuð áhrif á dómsmál Blackboard gegn Desire2Learn þar sem síðarnefnda fyrirtækið var dæmt fyrir brot á einkaleyfi Blackboard og gert að greiða þeim 3.1 milljón bandaríkjadali. Þess má einnig geta að í kjölfar dómsúrskurðarins fór Blackboard fram á að Desire2Learn yrði skipað að hætta allri sölu á samnefndu námsstjórnunarkerfi í Bandaríkjunum. Enginn vafi leikur á því að útilokun á bandaríkjamarkaði yrði nánast rothögg fyrir Desire2Learn, en fyrirtækið brást snarlega við beiðninni með að tilkynna nýja útgáfu af Desire2Learn kerfinu þar sem farið er í kringum þá þætti sem Blackboard hefur einkaleyfi á. Hvaða áhrif endurmat einkaleyfisstofunnar bandarísku mun á endanum hafa á málatilbúnað Blackboard gegn Desire2Learn á eftir að koma í ljós en væntanlega verður biðin löng því um er að ræða tímafrekt og ítarlegt ferli.

Eins og áður segir þá er úrskurðu einkaleyfisstofunnar bandarísku langt frá því endanlegur og Blackboard hefur ennþá tækifæri til þess að áfrýja honum. Fyrstu viðbrögð Blackboard við fréttunum má finna hér, en ráðamenn þar á bæ fullyrða að yfir 90% einkaleyfa sem ganga í gegnum endurmat af þessu tagi standist það. Michael Feldstein er þeim ekki alveg sammála.

Málið hefur haft afar neikvæð áhrif á ímynd Blackboard og var hún svo sem ekki allt of góð fyrir. Það kemur því engum á óvart að fréttunum af yfirvofandi ógildingu einkaleyfisins hefur hvívetna verið tekið fagnandi af netverjum. Sjónarspilið allt er að mínu mati einstaklega áhrifamikið dæmi um hversu slæm áhrif einkaleyfi á hugbúnaði geta verið. Hafið í huga að Blackboard er fyrirtæki sem hikar ekki við að byggja á og þróa áfram hugmyndir annarra. Nútíma námsstjórnunarkerfi eru ekki hugarfóstur þeirra bara svo það sé á hreinu. Nú þykir mér sjálfsagt og eðlilegt að þróa áfram eitthvað sem fyrir er á markaði og erfitt að sjá fyrir sér hvernig framþróun geti annars átt sér stað. Ég á hins vegar svo erfitt með að þola, að þegar þessir herrar þykjast hafa orðið vitni af innan sinna veggja þó ekki væri nema agnarögn af frumlegri hugsun þá kemur ekki annað til greina en að sækja um einkaleyfi til að græða sem mest á henni. Ég tel engar líkur á því að einhver fulltrúi Blackboard lesi þennan pistil minn, en langar þó mikið að koma eftirfarandi til skila. Ef það er vilji fyrirtækisins að græða sem mesta peninga og auðvitað er það vilji Blackboard þá mæli ég með því að þeir sem þar fara með völd leggi megináherslu á því að framleiða sem besta vöru handa viðskiptavinum sínum. Ekki veitir af.


Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Educause Quarterly (2/2008) er komið út á Netinu og inniheldur m.a. mjög áhugaverða grein um námsstjórnunarkerfi.
    Ég mæli sterklega með bókinni The Future of Reputation eftir Daniel J. Solove, sem gefin er út samkvæmt Creative Commons höfundarréttarleyfinu.
    Þriðjudaginn 13. maí nk. kl 15:00 verður haldið mjög áhugavert málþing í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðunnar um opinn aðgang (open access).
    Ný könnun á vegum ríkisháskólans í Ohio dregur í efa að raunhæf dæmi henti vel í stærðfræðikennslu.
  • Gagn og gaman