Opið – frjálst - ódýrt

Skrifað 05. April 2008
Flokkur: Fyrirlestur
Ein athugasemd frá lesendum

Ég er nýkominn af vel heppnuðum fræðslufundi á Akureyri um upplýsingatækni í skólastarfi undir yfirskriftinni “Er þetta ekki allt að koma?” Fundurinn var haldinn á vegum 3F og bókasafns og kennaradeildar Háskólans á Akureyri og gafst mér tækifæri til að vera með innlegg sem ég tók fegins hendi. Erindi mitt nefndi ég Opið – frjálst – ódýrt.

Eins og titillinn á erindi mínu gefur sterklega til kynna þá fjallaði ég um frjálsan og opinn hugbúnað og kemur það viðfangsefni væntanlega þeim sem þekkja mig og mitt áhugasvið lítið á óvart. Ég verð reyndar að viðurkenna að titillinn er frekar villandi þar sem ég einblíndi alls ekki á fjárhagslega hagkvæmni hugbúnaðarsins, heldur sögu og notkun í námi og kennslu. Líklegast á ég bara svo erfitt með að stilla mig um að stuða aðeins þá fjölmörgu sem trúa því að frjáls og opinn hugbúnaður snúist fyrst og fremst um peninga.



Í upphafi erindisins fjallaði ég stuttlega um nokkra áhrifamikla frumherja á þessu sviði, menn eins og Richard Stallman, Eric S Raymond og Linus Torvalds. Skoðun mín er nefnilega sú að erfitt geti reynst að skilja eða meta mikilvægi og áhrif hugmyndafræðinnar sem frjáls og opinn hugbúnaður grundvallast á, án þess að þekkja sögu eða í það minnsta brot af sögu frumherjanna. Ég bendi áhugasömum á greinina Opnar lausnir - frumherjarnir, sem birtist í vefritin Netlu á síðasta ári.

Eftir að hafa sagt í örstuttu máli frá frumherjunum útlistaði ég notkun á frjálsum og opnum hugbúnaði við Fjölbrautaskólan í Breiðholti. Ég sagði frá Moodle námsumhverfinu á www.dreifnam.is, Wikivefnum okkar á wiki.dreifnam.is, vef skólans á www.fb.is og starfsbrautarblogginu sem aðgengilegt er á vefslóðinni www.starfsbraut.is. Allt eru þetta vefir sem byggja á opnum lausnum og flestir þeirra væru örugglega ekki við líði nema vegna þess að við gátum nýtt okkur frjálsan og opinn hugbúnað.

Að lokum ræddi ég um vangaveltur mínar og ýmissa fræðimanna sem ég birti í væntanlegri grein frá mér, annarri greininni í þríleiknum um frjálsan og opinn hugbúnað. Þar er ég að skrifa um umfang og vöxt frjáls og opins hugbúnaðar og virkilega spennandi kenningar um tengsl slíkra lausna við nám og kennslu í nútíð og ekki síst framtíð.

Glærur og upptökur af öðrum fyrirlestrum á fræðslufundinum verða birtar fljótlega á Netinu.

p.s.
Höfundur myndarinnar sem fylgir þessari grein er Jón Pálma.


Related Post



1 athugasemd við “Opið – frjálst - ódýrt”

  1. Rúnar Haukur skrifar:

    Takk fyrir góðan fyrirlestur

Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman