Glósur, nemendur og höfundarréttur

Skrifað 09. April 2008
Engar athugasemdir frá lesendum

Ég las áhugaverða frétt á Wired blogginu nýlega þar sem segir frá prófessor nokkrum, Michael Moulton, við háskólann í Flórídafylki í Bandaríkjunum. Michael þessi heldur því fram að fyrirlestrar hans séu varðir höfundarrétti og hefur með aðstoð útgefanda síns lögsótt fyrirtæki sem kaupir glósur af háskólanemum og selur áfram.

Líkt og svo margir aðrir kennarar þá selur Moulton eigið efni til nemenda, í hans tilfelli í gegnum fyrirtæki sem nefnist Faulkner Press. Það er reyndar Faulkner Press sem stendur fyrir fyrrgreindri lögsókn í því skyni að vernda eigin hagsmuni og þeirra höfunda sem það hefur á sínum snærum. Útgáfa glósa, samantekta eða hjálparefnis í einstaka fögum eða jafnvel ritverkum er nefnilega ansi gróðavænlegt brall. Ég veit t.d. að nemendur hér á landi hafa nýtt sér þjónustu Cliff Notes útgáfunnar. SparkNotes er annar stór aðili á þessum vettvangi.

Í Wired er þeirri spurningu varpað fram hvort nemendur brjóti ekki höfundarrétt kennara með því einu að glósa í tímum þeirra, hvort sem glósurnar eru seldar til útgáfu, birtar endurgjaldslaust á Netinu eða einungis nýttar í þágu viðkomandi nemanda. Sullivan segir svo reyndar vera, en slíkt athæfi rúmist hins vegar innan ramma laganna ef notkunin er einstaklingsbundin.

Mál þetta er allt hið áhugaverðasta og vekur upp ýmsar spurningar um kennara og höfundarrétt. Sjálfum finnst mér að innihald fyrirlestrana sem um ræðir hljóti að skipta máli, þ.e. er viðkomandi kennari að fjalla um eigin kenningar eða annarra? Getur verið að ég sem kennari eigi höfundarréttinn að fyrirlestri eða kennslustund sem byggir að stórum hluta á verkum annarra? Annað skemmtilegt sjónarhorn kemur fram í athugasemd sem ég las um þessa frétt, en hún hljómar svona:

“If your class can be reduced down to an experience that fits onto paper and students can garner what they need to pass the test, then maybe you should find a new profession.”

Kannski það sé bara málið.


Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman