Fyrstu kynni af Pencil teikniforritinu
Ég komst í tæri við Pencil teikniforritið fyrir stuttu og hef verið að kynna mér kosti þess undanfarið með það í huga að nýta í kennslu á Starfsbraut FB. Pencil er opinn hugbúnaður og til í útgáfum fyrir öll helstu stýrikerfi, þ.e. Windows, Makka og Linux.
Sá er munurinn á Pencil og öðrum teikniforritum opnum sem ég hef kynnt mér og skrifað um á þessum vettvangi að Pencil inniheldur auk algengustu teiknitóla tímalínur sem gera notendum kleift að skapa einfaldar hreyfimyndir í hugbúnaðinum.
Þannig er hægt að setja saman stuttar eða langar teiknimyndir sem meira að segja geta innihaldið hljóð eða tónlist. Ég er einmitt afskaplega spenntur fyrir því að vinna slík verkefni með nemendum mínum. Hér fyrir neðan má sjá stutt tónlistarmyndband sem unnið var með Pencil teikniforritinu og sýnir betur en margt annað möguleika þess.
Þróun Pencil er enn á frumstigi og augljóslega ýmislegt sem þarf að bæta og annað sem enn á eftir að bæta við. Pencil býður t.a.m ekki upp á textavinnslu sem er töluverður galli og fleira má reyndar tiltaka þó það verði ekki gert hér og nú. Svo allrar sanngirnis sé gætt er sjálfsagt að geta þess að útgáfan sem ég reyndi var tölusett 0.4.4 þannig að enn er langt í land. Það breytir því samt ekki að um hið þokkalegasta teikniforri er að ræða sem í náinni framtíð gæti vel orðið spennandi valkostur í kennslu.
April 13th, 2008 at 2:01
Ég er líka búin að vera að prófa Pencil en ég hef ekki fundið aðferð til að afrita mynd frá einum ramma í annan (nema auðvitað með venjulegu paste) og það takmarkar dáldið notkunarmöguleika. Einnig hef ég ekki fundið út hvers konar myndir er hægt að importa.
April 13th, 2008 at 2:08
Ég komst einmitt að þessu líka og leitaði m.a. eftir svörum á umræðuvef notenda. Þar hafði einhver notandi rekist á þetta vandamál og ekki fundið lausn á því, þ.e. nema að afrita eins og þú bendir á. Það er bara vonandi að þetta verði lagfært fljótlega.