Crayon Physics nefnist hugbúnaður sem ég hef kynnt lesendum undir liðnum gagn og gaman hér á blogginu. Fyrir stuttu ákvað ég að láta reyna á forritið með nemendum mínum á starfsbraut FB og í stuttu máli sagt þá sló það eftirminnilega í gegn.
Crayon Physics er stórskemmtilegt sköpunarverk Finnans Petri Purho en hann hefur sett sér það metnaðarfulla takmark að gefa út nýjan tölvuleik eða í það minnsta drög að tölvuleik mánaðarlega. Lesið endilega um þetta verkefni hans á Kloonigames vefnum. Crayon Physics er einmitt einn af þeim leikjum sem sprottið hafa upp úr þessari tilraun Purho og tók þann Finnann fráa einungis fimm daga að setja hann saman. Ég þarf varla að taka það fram að leikinn er hægt að sækja án endurgjalds á Netið.
Markmiðið með Crayon Physics leiknum er afar einfalt, eins og leikurinn allur. Allt sem spilarinn þarf að gera er að láta boltann á skjánum snerta stjörnuna (eða stjörnurnar) með því að teikna form á skjáinn. Það getur hins vegar reynst þrautinni þyngri að ná þessu takmarki því hinars ýmsu hindranir eru lagðar í veg boltans. Þar að auki eru allir hlutir á skjánum háðir þyngdaraflinu og þar með taldir þeir sem spilarinn teiknar. Ég skal útskýra þetta nánar.
Til þess að koma boltanum á hreyfingu verður að teikna einhvern hlut, ferning eða hring. Um leið og lokið er við að teikna hlutinn tekur þyngdaraflið við stjórninni. Þannig er hægt að teikna ferning í lausu lofti sem fellur niður, eins og gefur að skilja, um leið og spilarinn sleppir af honum pennanum.
Í myndskeiðinu hér að ofan getur að líta stutt sýnishorn úr Crayon Physics sem segir meira en mörg orð.
Crayon Physics leikurinn er í eðli sínu þrautalausn sem gerir hann svo aðlaðandi í kennsluumhverfi starfsbrautar og væntanlega á fleiri stöðum líka. Það er líka mjög einfalt að læra á hann en krefst skapandi hugsunar að leysa þrautirnar sem hann hefur að geyma. Ég hvet t.a.m. leikskólakennara að kynna sér þennan stórskemmtilega hugbúnað og lofa ykkur að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum með viðtökurnar.
Purho vinnur um þessar mundir að nýrri og vandaðri útgáfu Crayon Physics, en á meðan hún er í vinnslu látum við okkur þetta “uppkast” nægja. Stofnaður hefur verið vefur í kringum leikinn þar sem m.a. er hægt að sækja fleiri þrautir. Sýnshorn af nýju útgáfunni hefur þegar ratað á YouTube. Sjón er sögu ríkari.


