Close

Svona gerum við

Námsefni

Kvikmyndagetraun

Helst vil ég leggja fyrir nemendur mína í FB verkefni sem eru í senn krefjandi og áhugaverð. Stundum hef ég eins og gefur að skilja lítið um verkefnavalið að segja, en endrum og sinnum rekst ég á efni sem ég veit að er eins og sniðið til að nota í kennslu. Eitt slíkt fann ég á vefnum anna.is fyrir nokkru.

Anna Helgadóttir starfar sem “Online Marketing Manager” hjá Marel Food Systems samhliða því að skrifa stórskemmtilega pistla á vefinn sinn anna.is Anna hefur það einnig fyrir sið að birta reglulega kvikmyndagetraunir á vefnum þar sem lesendur er gefinn kostur á því að giska á heiti myndar út frá einum einstaka myndramma sem auk þess hefur verið breytt í Photoshop.

Þegar ég rakst á þessa kvikmyndagetraun á vefnum hennar Önnu sá ég strax í hendi minni að þarna væri kjörið verkefni fyrir nemendur mína í stafrænni myndvinnslu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Ég ákvað því að skilgreina hluta af lokaverkefnis áfangans eftirfarandi:

Hver nemandi vinnur einn myndramma úr þekktri bíómynd eða sjónvarpsþætti. Eyða skal öllu sem einkennir persónur sem sjást á myndinni, þ.e. andlit og hendur en ekki fatnað. Myndinni skal skila í flickr skilamöppuna og auk þess í sérstakan flickr safnvef þar sem myndunum verður haldið til haga.

Eins og mig grunaði þá hefur þetta reynst stórskemmtilegt verkefni og yfirleitt mjög krefjandi fyrir nemendur, en það fer reyndar dálítið eftir því hvernig mynd þeir velja sér að vinna með. Afraksturinn er líka mjög skemmtilegur. Úr hvaða kvikmynd eða sjónvarpsseríu er t.d. þetta skjáskot hér að neðan?

Eins og sjá má er alls ekki nóg að eyða svæðum úr myndinni heldur verður að byggja bakgrunninn upp frá grunni sem oft er hægara sagt en gert.

Áfanginn sem um ræðir nefnist USF1036 og er hluti af upplýsingatæknilínu á nátturufræðabraut við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.


Tengt efni

  1. Elvar Már Jóhannesson04-25-08

    þetta er úr house

  2. sfjalar04-30-08

    Rétt hjá þér.

Skráðu athugasemd