Einfaldaðu aðgengið að hugbúnaði tölvunnar og skjölum

Skrifað 28. April 2008
Flokkur: aðgengi
Engar athugasemdir frá lesendum

Það verður bara að segjast eins og er að þegar kemur að hönnun notendaviðmóta þá komast sérfræðingarnir í Microsoft ekki með hælana þar Steve Jobs og félagar hans hjá Apple hafa tærnar. Til allrar lukku fyrir Windows notendur, þ.e. skólakerfið eins og það nánast leggur sig, hafa hinir ýmsu aðilar tekið sig til og endurskapað á Windows sumt af því sem makkanotendur geta gengið að sem vísu á eigin vélum.

Eitt af því sem löngum hefur heillað mig við OS X stýrikerfið er forritasláin (dock), en hún einfaldar mjög aðgengi notenda að algengum hugbúnaði og skjölum. Ég veit vel að þessi eiginleiki hefur verið gagnrýndur nokkuð, t.d. er sláin sögð of stór og klunnaleg og erfitt geti verið að greina á milli ólíks hugbúnaðar. Hugsanlega hafa slíkar raddir haft sitthvað til síns máls á sínum tíma en í dag held ég að þetta eigi ekki við. Það er allavega ekki mín reynsla.

Svona birtist Rocketdock á skjánum

Sjálfgefin staðsetning sláarinnar er neðst á skjánum og getur hún geymt óskilgreindan fjölda hluta, þ.e. vísanir í forrit og skjöl. Hægt er að stilla slánna þannig að hún hvíli utan skjásins og birtist einungis þegar bendillinn er staðsettur neðst á skjánum. Þegar sá háttur er hafður á tekur sláin ekkert pláss og truflar engan, en þjónar fullkomlega sínu hlutverki þegar notandinn þarf á því að halda.

Einn stærsti kosturinn við slánna er að mínu mati sá að á hana má raða að vild þeim forritum og skjölum sem viðkomandi notandi vill hafa innan handar. Start hnappur Windows og allt sem honum fylgir er einfaldlega ekki að gera sig. Í mínu tilfelli hentar sláin einstaklega vel þar sem hún auðveldar nemendum mínum við starfsbraut FB aðgengi að þeim hugbúnaði sem við erum að vinna með á hverjum tíma.

Ég vil taka það fram að ég er rétt að þreifa mig áfram með notkun á forritaslánni með nemendum mínum. Það á eftir að koma í ljós hvernig endanlega til tekst og hvort ég mun halda tilraununum áfram eður ei. Þetta lofar í það minnsta góðu enn sem komið er hvað sem síðar verður.

Windows útgáfur af forritaslánni eru nokkar til. Hér eru þær helstu:

  • RocketDock (þessa nota ég)
    Hér má sjá myndskeið af Rocketdock í notkun. Forritið má sækja og nota endurgjaldslaust.
  • ObjectDock
    Til í ókeypis og “plus” útgáfu. Plus útgáfan býður upp á fleiri kosti en fyrir hana þarf að greiða $19.95. Hér má sjá myndskeið af ObjectDock plus í notkun.
  • RK Launcher
    Hef ekki reynslu af þessari lausn. Virðist ekki vera í eins mikilli þróun og hinar tvær ef eitthvað er að marka útgáfunúmerið.

Að lokum er hér slóð á nokkrar Linux útgáfur af sambærilegum hugbúnaði.


Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman