Erindin á Fræðslufundinum Er þetta ekki allt að koma? sem haldinn var á Akureyri 4. apríl sl. eru nú aðgengileg á Netinu. [Translate]
Getur verið að vandi grunnskólanna felist í illþolanlegum starfsskilyrðum? Það segir Atli Harðarson m.a. á vef sínum og gott ef hann hefur ekki ýmislegt til síns máls. [Translate]
Ég komst í tæri við Pencil teikniforritið fyrir stuttu og hef verið að kynna mér kosti þess undanfarið með það í huga að nýta í kennslu á Starfsbraut FB. Pencil er opinn hugbúnaður og til í útgáfum fyrir öll helstu stýrikerfi, þ.e. Windows, Makka og Linux. [Translate]
Ég las áhugaverða frétt á Wired blogginu nýlega þar sem segir frá prófessor nokkrum, Michael Moulton, við háskólann í Flórídafylki í Bandaríkjunum. Michael þessi heldur því fram að fyrirlestrar hans séu varðir höfundarrétti og hefur með aðstoð útgefanda síns lögsótt fyrirtæki sem kaupir glósur af háskólanemum og selur áfram. [Translate]
“Pro” notendur á Flickr, þ.e. notendur sem greiða ársgjald fyrir aðgang, geta nú hýst þar stutt myndskeið (90sek) ásamt ljósmyndum. [Translate]
Dagur upplýsingatækninnar verður haldinn 7. maí 2008. Í tilefni dagsins verður haldin ráðstefna þar sem kynnt verður ný stefna ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið og fjallað um verkefni sem hrinda á í framkvæmd á næstu árum. [Translate]
Ég er nýkominn af vel heppnuðum fræðslufundi á Akureyri um upplýsingatækni í skólastarfi undir yfirskriftinni “Er þetta ekki allt að koma?” Fundurinn var haldinn á vegum 3F og bókasafns og kennaradeildar Háskólans á Akureyri og gafst mér tækifæri til að vera með innlegg sem ég tók fegins hendi. Erindi mitt nefndi ég Opið – frjálst ...
Næstkomandi miðvikudag ætla ég að fylgjast með fyrirlestri Þorsteins Helgasonar sem hann nefnir Úr fjötrum kennslubókanna. [Translate]
Athugasemdir