Tilgangurinn með Pangea deginum er að auka umburðarlyndi og samkennd fólks með því að sameina heimsbúa í draum um betri framtíð. Í því skyni var stofnað til alþjóðlegrar stuttmyndasamkeppni þar sem rúmlega 2500 myndir bárust frá meira en 100 löndum. 24 verk voru svo valin og verða sýnd á sérstakri fjögurra klukkustunda langri dagskrá sem send verður út frá sex stöðum víðsvegar um heiminn, Cairo, Kigali, London, Los Angeles, Mubai og Rio de Janeira. Dagskráin verður í beinni útsendingu í sjónvarpi, stafrænum kvikmyndahúsum og á Netinu. Stuttmyndirnar voru valdar með það að leiðarljósi að .. gera okkur kleift að sjá heiminn með augum annarra.
Þess má einnig geta að Pangea dagurinn er gagnvirkur viðburður sem haldinn verður hátíðlegur víðsvegar um heiminn og frá þeim stöðum munu berast myndir, tónar og tal sem verða svo samþætt beinu útsendingunni ásamt því að vera birt á pangeaday.org vefnum.
Pangea dagurinn hugarfóstur Jehane Noujaim sem m.a. er höfundur heimildarmyndanna Control Room og Startup.com. Noujaim hélt áhrifamikinn fyrirlestur á TED ráðstefnunni mögnuðu þar sem hún lýsti hugsjón sinni með orðunum “I want to bring the world together for one day a year through the power of film.” Ég hvet alla til að fylgjast með henni tala á TED.
Pangea dagurinn er einstakt tækifæri til að minna okkur öll á það sem við eigum sameiginlegt í stað þess að einblína á allt það sem skilur okkur að.
Hvað Pangea heimsálfuna varðar má lesa meira um hana á Wikipedia eða Vísindavefnum.


