TwitterCamp er tær snilld
TwitterCamp hugbúnaðurinn er jafn einfaldur og hann er þrælsniðugur. Hlutverk hans er það eitt að birta á smekklegan hátt skjáfylli af Twitter færslum sem uppfærðar eru í rauntíma. Snilld ekki satt!
TwitterCamp var upphaflega hannað af Daniel nokkrum Dura í tilefni af AppolloCamp, ráðstefnu sem Adobe hélt á sínum tíma. TwitterCamp var ætlað að gera þátttakendum gerlegt að fylgjast með og leggja sitt til ráðstefnunnar með færslum á Twitter örblogginu. Ráðstefnugestir gátu þannig nýtt Netið eða gsm síma til að koma á framfæri eigin viðbrögðum, athugasemdum eða ábendingum við fyrirlestra og vinnustofur. Allt í rauntíma og fyrir allra augum.
Ég rakst á TwitterCamp forritið fyrir margt löngu og leist strax vel á, en gaf mér ekki tíma til að prufukeyra þá og þegar. Síðar, þegar tími gafst, komst ég að því mér til mikillar armæðu að um var að ræða útgáfu sem virkaði ekki með nýjustu útgáfunni af Adobe Air (vinnuheiti Air var einmitt Apollo), en TwitterCamp er skrifað fyrir það umhverfi. Fyrir stuttu komst ég svo að því að TwitterCamp hefur verið uppfært og vinnur nú vel með Air 1.0 og beið auðvitað ekki boðanna heldur setti það upp hið snarasta. Uppsetning er afar einföld:
- Sæktu og settu upp Adobe Air, þ.e. ef það er ekki þegar til staðar á tölvunni.
- Sæktu og settu upp nýjustu útgáfuna af TwitterCamp.
- Ræstu TwitterCamp og innskráðu þig með Twitter notandanafni og aðgangsorði. Eins og gefur að skilja þarftu að hafa aðgang að Twitter til að nýta þennan hugbúnað.
Eins og fram hefur komið þá er TwitterCamp sérstaklega hannað með það í huga að nota á ráðstefnum og væri virkilega spennandi að sjá forritið í því hlutverki hér á landi. Ég man eftir vel heppnaðri UT ráðstefnu á Snæfellsnesi fyrir nokkrum árum þar sem MSN snarboðin voru nýtt á sérlega skemmtilegan hátt. Ég efast ekki um að TwitterCamp gæti reynst alveg jafn áhugaverð nýbreytni. Sjálfur hef ég í huga að kanna möguleika Twitter og auðvitað TwitterCamp í kennslu við FB. TwitterCamp er opinn hugbúnaður og því auðvelt að aðlaga að hvaða notkun og umhverfi sem er, t.d. hvað útlitið varðar. Eitthvað vandamál virðist vera í gangi með íslenska bókstafi og hef ég sent inn athugasemd og verður það vonandi lagfært innan tíðar. Ég er með ýmsar vangaveltur í gangi hvað varðar not í kennslu. Læt ykkur vita hvernig gengur.
Skyld en ekki nánda eins skemmtileg lausn er Twitterific. Ég hef einnig verið að skoða mjög svipaða lausn sem keyrir á Silverlight og nefnist Twitterlight. Hef ekki ennþá fengið hana til að birta efni frá mér og mínum Twitter tengiliðum. Myndskeiðið hér að neðan inniheldur svo nánari útskýringu á Twitter.




May 11th, 2008 at 10:04
Ég þarf að prófa þetta. Verð nú að segja að mér hefur ekki vel tekist að vekja athygli nemenda minna á twitter. Ég held að mörgum finnist það tímaeyðsla.
May 13th, 2008 at 9:59
Hæ hæ
Eins og venjulega er alltaf eitthvað gott að græða á þér Fjalar. Þetta Twitter dæmi er náttúrulega snilld og ég sé alveg fyrir mér ráðstefnunotkun. En í kennslu ??? alla vega ekki í grunnskólum