Cricksoft opnar Learning Grids World

Skrifað 12. May 2008
Flokkur: Clicker
Engar athugasemdir frá lesendum

Cricksoft, framleiðandi Clicker hugbúnaðarins vinsæla, hefur opnað LearningGrids World, nýja þjónustu á Netinu sem gerir notendum kleift að sækja, safna og flokka verkefni sem unnin eru í Clicker/Clicker Paint, Jigworks, ClozePro og WriteOnline.

LearningGrids World er í raun viðamikil uppfærsla á LearningGrids vefnum sem Cricksoft hefur rekið um árabil og hýsti umfangsmikið, flokkað safn verkefna í fyrrgreindum hugbúnaði. Auk verkefnasafnsins hafa notendur LearningGrids World nú aðgang að eigin möppum þar sem þeir geta safnað og flokkað verkefnin úr safni Cricksoft og þar að auki hýst eigin verkefni. Hver notandi hefur allt að 50MB geymslupláss á vefþjónum Cricksoft. LearningGrids World er þar að auki heimili WriteOnline, nýju netbundnu ritvinnslu Cricksoft.

LearningGrids World eykur mjög notagildi verkfæra eins og Clicker og ClozePro enda mikill kostur að hafa aðgang að stóru safni verkefna sem hægt er að sækja, aðlaga eða hafa til hliðsjónar við eigin verkefnasmíði.

Aðgangur að LearningGrids World er varinn með notandanafni og lykilorði, en hver sem er getur sótt um aðgang án endurgjalds. Við innskráningu opnast yfirlitssíða þar sem aðgangur að einstaka hugbúnaðarsöfnum er á vinstri hönd en flipar efst á síðunni að einstaka hlutum vefsins. Þannig er smellt á Free Resources flipann til að fá aðgang að verkefnasafni Cricksoft eða Online Folders til að opna eigið verkefnasafn.

Eigin verkefnasafn í LearningGrids World

Mest spennandi eiginleiki LearningGrids World fest í því að geta búið til eigið verkefnasafn á Netinu og haft aðgang að því hvar og hvenær sem er. Innan tíðar verður hægt að stofna samskonar aðgang fyrir skóla, skólaumdæmi eða jafnvel íslenska Clickernotendur í heild sinni. Sá kostur er verulega spennandi því í dag eru allir að vinna einangraðir hver í sínu horni. Ég fjalla betur um þennan möguleika þegar opnað hefur verið fyrir hann.

Umboðsaðili Cricksoft á íslandi er A4-Skólavörubúðin. Ég hef kennt á námskeiðum í Clicker í samstarfi við Skólavörubúðina. Hafið samband við mig beint eða Skólavörubúðina ef áhugi er á námskeiði.


Related Post



Skráðu athugasemd

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”.
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
  • Gagn og gaman