WorldWide Telescope er himnasending
Hinn umtalaði WorldWide Telescope hugbúnaður Microsoft er nú loks aðgengilegur í betaútgáfu. WorldWide Telescope má helst líkja við Google Earth/Sky nema hvað viðfangsefnið er himinngeimurinn í allri sinni dýrð. Forritið er vafalítið það markverðasta sem komið hefur úr herbúðum Microsoft í lengri tíma.
WorldWide Telescope er ekkert minna en heillandi hugbúnaður, einskonar sýndarsjónauki sem veitir aðgang að myndum jafnt frá sjónaukum á sporbaug um jörðu sem og jarðbundnari búnaði. WorldWide Telescope inniheldur þar að auki fjölda skoðunarferða sem eru einskonar leiðangrar eða stuttmyndir, í senn fróðlegar og sumar hverjar mjög áhrifamiklar. Notendur geta úið til eigin skoðunarferðir innan WWT og efast ég ekki um að sá kostur eigi eftir að koma sér vel fyrir bæði nemendur og kennara. WorldWide Telescope er án efa magnað verkfæri í kennslu.
Notendaviðmót WorldWide Telescope er aðgengilegt og forritið er einfalt í notkun þó vissulega sé ekki alveg eins auðvelt að flakka um endaleysur himingeimsins og jörðina í Google Earth. Kemur það fyrst og fremst til vegna þess hve geimurinn er ókennilegur, í það minnsta fyrir mér. Væntanlega munu ýmsir kunna mun betri skil á þessum slóðum.
Markmiðið með smíði WWT er tvíþætt samkvæmt Microsoft:
- Í fyrsta lagi að safna saman gögnum frá helstu sjónaukum og stofnunum og gera aðgengilegar á samþættan hátt á Netinu.
- Í öðru lagi að endurvekja áhuga yngri kynslóðarinnar á vísindum með aðstoð stjörnufræðinnar og gera aðgengilegt öflugt verkfæri til uppgötvunar og kennslu.
WorldWide Telescope er hægt að sækja án endurgjalds á Netið. Sækið, skoðið og sannfærist.
