Flassararnir í FB
Undanfarin ár hef ég kennt áfanga í margmiðlun við FB þar sem meginviðfangsefnið er Flash hugbúnaðurinn frá Adobe (áður Macromedia). Í áfanganum sem er hluti af ut-braut skólans er áhersla lögð á kennslu og þjálfun í Actionscript forritunarmálinu og til að gera hann sem allra áhugaverðastan og virkja nemendur sem best forritum við leiki.
Leikjaforritun er margþætt og krefjandi viðfangsefni og kjörin leið til að vekja og viðhalda áhuga nemenda á forritun sem getur reynst verulega tyrfin og óaðlaðandi í augum óinnvígðra. Forritun einfaldra flashleikja hentar líka vel til að tengja það sem fram fer í kennslustofunni áhugasviði og raunheim nemenda sem, eins og kennarar þekkja mæta vel, grípa gjarnan til smáleikja þegar kennsluefnið eða kennslan nær ekki að fanga hug þeirra og hjarta. Í USF 4036 (Upplýsinga og samskiptafræði) áfanganum nálgumst við hins vegar leiki á annan og ólíkan hátt enda markmiðið að smíða þá frekar en spila.
Actionscript er ekki fyrsta forritunarmálið sem nemendur á UT-braut skólans læra. Þeir byrja á því að kynnast gagnagrunnstengdri vefforritun í PHP en snúa sér síðan að forritun í Java. Kennsla í PHP og Java fer fram í HUB áföngum brautarinnar þar sem Kristján nokkur Friðbert fer með völd. Snillingur með meiru hann Kristján og fengur að fá hann til skólans. Nemendur eiga því að hafa ágætis grunn í forritun þegar kemur að USF 4036 áfangangum. Reyndar hef ég ekki verið að gera neinar slíkar forkröfur til nemenda því við förum hægt af stað og vinnum ýmsar æfingar þar sem grundvallaratriði forritunar koma við sögu. Áfanginn er því opinn öllum sem áhuga hafa.
Flash er aðlaðandi tækniumhverfi í kennslu ýmissa hluta vegna. Það er í fyrsta lagi mjög vinsælt, stutt af öllum helstu vefskoðurum og auðvelt að sækja upplýsingar eða ráðleggingar á vefinn þar sem notendahópurinn er stór. Í öðru lagi þá er hönnunarumhverfið aðgengilegt og einfalt og fljótlegt að setja saman myndrænt, gagnvirkt efni. Leikjaforritun í Actionscript krefst að sjálfsögðu töluverðrar þekkingar en hún er fljót að koma þegar áhuginn er fyrir hendi. Það er að sjálfsögðu stór galli að þurfa að notast við dýrkeypt þróunarumhverfi en við því er lítið að gera eins og staðan er í dag.
Ég byrja áfangann á því að kynna fyrir nemendum Flash umhverfið og helstu verkfæri sem standa notendum til boða. Unnin eru verkefni þar sem þjálfuð eru notkun teikniverkfæranna og tímalínan en síðan er röðin komin að forritun með Actionscript. Uppbygging málsins er kynnt og nemendur vinna verkefni sem byggja á einfaldri gagnvirkni og hreyfingu hluta á skjánum.
Einn af fjölmörgum kostum við forritunarkennslu er sá að það er hægt að skapa svo mikla fjölbreytni í verkefnavinnunni og snertifletir við aðrar námsgreinar eru svo margir og spennandi. Hér get ég t.a.m. bent á stærðfræði og eðlisfræði, en í USF 4036 áfanganum vinna nemendur verkefni þar sem t.d. er hermt eftir þyngdaraflinu eða hreyfingu bifreiðar. Stærðfræði fær allt aðra merkingu þegar hún er nýtt til þess að reikna út stefnu sýndarbifreiðar sem stýrt er með lyklaborðinu (smellið á myndina og notið örvalyklana). Ég er sannfærður um að stærðfræðikennarar hefðu gaman af því að kynna sér þessa möguleika.
Lokaverkefni áfangans er svo fullbúinn smáleikur þar sem reynir á sjálfstæða vinnu og sköpunarkraft nemenda. Lokaverkefni vinna nemendur í litlum hópum. Hér má sjá sýnishorn af lokaverkefni nemenda í áfanganum.
Svona til gamans má geta þess að ég miðaði verkefnavalið við gamla klassíska tölvuleiki þannig að nemendur fá vonandi örlitla innsýn í þróun tölvuleikja. Ég ætla að gera aðeins meira úr þeim þætti næsta haust þegar ég kenni áfangann á ný. Hvað kennsluhætti varðar þá vil ég hafa mitt kennsluumhverfi óformlegt og opið. Ég held fáa fyrirlestra í kennslustofunni en reiði mig þeim mun meira á aðferðir sem byggja á samvinnu, uppgötvun og sjálfstæðri vinnu nemenda. Það hefur gengið vonum framar að mínu viti og það er yfirleitt mjög skemmtilegt og mikið um að vera í tímum. Ég treysti nemendum mínum og þeir hafa reynst traustsins verðir. Hversu vel þessi áfangi hefur heppnast er náttúrulega fyrst og fremst þeim að þakka.
May 21st, 2008 at 11:58
Þetta er í ALLRA ALLRA fyrsta sinn sem ég prufa tölvuleik, ég keyrði þennan skriðdreka í holu en tókst að skjóta þyrlu??
Þetta er sjálfsagt ótrúlega skemmtilegt að kenna krökkum að skapa svona, alltaf eitthvað nýtt í gangi, gefandi vinna, en það er erfitt að vera gamal hundur þegar maður ætlar að læra eitthvað nýtt, mér tókst að láta bát sigla yfir skjáinn hjá mér og fisk hoppa upp úr sjónum en svo náði mín flassreynnsla ekki lengra, en hver veit hvað gerist.
Flott hjá þér