Ég tel mig nokkuð fastheldinn á hugbúnað. Þegar ég loks hef ratað á hið eina rétta forrit þarf töluvert átak til að ég söðli um og taki upp aðra lausn og er ég þó nýjungagjarn að endemum. Á þessari reglu eru hins vegar nokkrar mikilvægar undantekningar. [Translate]
Á stofnfundi rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun var kynntur nýr vefur rannsóknarstofunnar. [Translate]
Miðvikudaginn 25. júní kl. 11 verður stofnfundur rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun (RannUM) við Kennaraháskóla Íslands. Stutt athöfn verður í stofu H-001 þar sem undirritaður verður samningur um stofnun og rekstur stofunnar. [Translate]
Áhugaverð grein á vef Félags um stafrænt frelsi um alsherjareftirlit og verndun persónuupllýsinga. [Translate]
Ég legg hér og nú til að ráðuneyti menntamála og skólar íhugi vandlega þann möguleika að færa námskrár yfir á wiki snið. Ég er sannfærður um að sá framsetningarmáti hafi í för með sér ótvíræða kosti umfram það fyrirkomulag sem nú tíðkast. [Translate]
Hér er hæst að sækja fyrirtaks Firefox viðbót (extension) sem birtir sérstakan hnapp við vefi sem notendur geta breytt að vild. [Translate]
280 Slides er enn ein tilraunin til að búa til netbundna útgáfu af Powerpoint. Reyndar ekki svo slæm. [Translate]
Snagit hugbúnaðurinn frá Techsmith er eitt af þeim verkfærum sem ég nota mikið í starfi mínu sem kennari og námsefnishöfundur. Snagit er sérhæfður hugbúnaður til þess að taka og vinna með skjámyndir og vafalítið sá besti sinnar tegundar. Fyrir stuttu kynnti Techsmith útgáfu 9 af Snagit og inniheldur hún nokkrar forvitnilegar nýjungar. [Translate]
Athugasemdir