Acrobat.com
Adobe hefur opnað gátt að netbundinni þjónustu fyrirtækisins á vefnum Acrobat.com. Í dag geta notendur skráð sig ókeypis á Acrobat.com og unnið texta í Buzzword ritvinnslunni eða haldið netfundi með aðstoð ConnectNow. Þá er einnig boðið upp á hýsingu og miðlun á skjölun auk þess sem notendur geta búið til PDF skjöl í gegnum Netið.
Adobe sem hvað þekktast er fyrir Photoshop, Illustrator og Indesign hugbúnaðinn er greinilega að taka stórt skref í sömu átt og Google og önnur fyrirtæki sem á undanförnum árum hafa lagt mikla fjármuni og tíma í að skapa netbundnar útgáfur af hefðbundnum hugbúnaði. Þess má geta að fyrir skömmu opnaði Adobe fyrir aðgang að Photoshop Express sem er netvæddur samnefnari Photoshop myndvinnslunnar. Reyndar verður að segjast eins og er að Express útgáfan af Photoshop á lítið sameigilegt með samnefnara sínum annað en auðvitað sjálft nafnið.
Ég er dyggur notandi Google Docs og sé því takmarkaðan tilgang í að skipta yfir í Buzzword netritvinnsluna frá Adobe. Ég er hins vegar öllu spenntari fyrir ConnectNow netfundalausninni sem lofar mjög góðu þrátt fyrir að notkunin takmarkist enn sem komið er við 3 samtímanotendur. Ég geri fastlega ráð fyrir að í náinni framtíð muni Adobe kynna til sögunnar áskriftarþjónustu í tengslum við Acrobat.com og bjóða upp á mun stærra geymslupláss fyrir skjöl (er 5mb í dag) og enn öflugri netfundi.
Í millitíðinni er kjörið að kynna sér ConnectNow. ConnectNow er hefðbundinn netfundaþjónusta og inniheldur allar algengustu aðgerðir slíkrar þjónustu. Hægt er að deila tölvuskjám í rauntíma, deila skjölum og myndum frá vefmyndavélum (webcam). Þátttakendur geta sent textaboð á milli hvers annars og skráð sameiginlegar athugasemdir (notes) auk þess sem kerfið inniheldur teiknitöflu (whiteboard). ConnectNow styður einnig við samskipti í gegnum hljóðnema (voip). Notendaviðmótið er sérlega einfalt og aðgengilegt og ekki er þörf á því að setja upp viðbótarhugbúnað til að stofna eða taka þátt í ráðstefnu og er það mikill kostur. ConnectNow keyrir í Flash/Air.
ConnectNow er fyrst og fremst ætlað fyrir einstaklinga og smærri fyrirtæki og er að því mér sýnist eins og sniðið til að nota í kennslu. Að sjálfsögðu er þetta alltaf spurning um verðlagningu og vonandi verður það ljóst fyrr en seinna hversu dýrkeypt þessi þjónusta verður og þá um leið hversu aðlaðandi kostur hún verður í fjársveltu skólastarfi. Þangað til það er komið á hreint getum við kennarar sem á því þurfum að halda nýtt okkur ókeypis aðgang að þessari ágætu netfundalausn og vissulega eru þrír samtímanotendur betra en ekki neitt.
