Hvað er nýtt í Snagit 9?
Snagit hugbúnaðurinn frá Techsmith er eitt af þeim verkfærum sem ég nota mikið í starfi mínu sem kennari og námsefnishöfundur. Snagit er sérhæfður hugbúnaður til þess að taka og vinna með skjámyndir og vafalítið sá besti sinnar tegundar. Fyrir stuttu kynnti Techsmith útgáfu 9 af Snagit og inniheldur hún nokkrar forvitnilegar nýjungar.
Nýtt notendaviðmót.
Notendaviðmót Snagit hefur tekið gagngerum breytingum bæði hvað lit og aðgengi varðar. Valseðlar eru horfnir og þess í stað komnir borðar þeir sem kynntir voru til sögunnar af Microsoft í Office 2007. Þetta er breyting til batnaðar að mínu mati. Aðgerðir forritsins eru fyrir vikið aðgengilegri og vinnsla verður fljótlegri og einfaldari. Ég er reyndar hlutdrægur hvað borðana varðar því ég hef verið að kenna á Office 2007 allan síðasta vetur. Litasamsetning notendaviðmótsins hefur einnig breyst og skartar Snagit nú öllu dekkra viðmóti. Ég veit s.s. ekki hvað mér á að finnast um það. Skiptir mig ekki öllu máli.
Einfalt að taka og vinna með mörg skjáskot í einu
Þetta er að mínu mati ein besta viðbótin við Snagit. Nú er einfalt að taka skjámynd eftir skjámynd, t.a.m. þegar ætlunin er að lýsa einhverju ferli í hugbúnaði, og vinna þær allar eftir á. Þegar skjámynd hefur verið tekin geymir Snagit hana en notandinn ákveður hvenær og hvort hann vill vista myndirnar. Skjámyndirnar eru sýnilegar neðst á viðmótinu þar sem hægt er að flakka á milli þeirra og kalla fram þá mynd sem vinna skal í hvert skipti. Einfalt er að samþætta tvær eða fleiri myndir með því að draga eina yfir á aðra.
Endurbætt myndasafn nú með lykilorðum og tögum
Eins og áður var sagt geymir Snagit 9 skjáskot þangað til notandinn ákveður að henda þeim eða vista í myndasafnið. Þannig að þegar notandi hættir vinnslu í forritinu þá getur hann gengið að skjáskotunum vísum næst þegar hann opnar það. Ég veit ekki hversu mörg skjáskot forritið geymir á þennan hátt en get vel ímyndað mér að það hljóti að vera nokkuð pirrandi þegar þau eru farin að safnast saman. Að sjálfsögðu er ekkert einfaldara en eyða skjáskotum sem engin þörf er á lengur.
Snagit 9 inniheldur tög, þ.e. föst lykilorð sem hægt er að tengja við skjáskot. Þannig er t.a.m. einfalt að merkja allar skjámyndir sem tengjast villuboðum með taginu “Bug/Error”. Þetta getur komið sér vel en það er ókostur að tögin skuli vera “harðkóðuð”, þ.e. notendur geta ekki búið til sín eigin tög. Notendur hafa hins vegar kost á að skilgreina eigin lykilorð (keywords) sem hafa í raun sömu virkni og tögin. Á þann hátt er auðveld að flokka myndir sem t.d. tilheyra sama verkefninu. Ég er mjög ánægður með þennan kost. Mér finnst einnig skemmtilegt að sjá að Snagit greinir úr hvaða hugbúnaði skjámyndir eru komnar og flokkar þær sjálfvirkt á þann hátt.
Ég get hiklaust mælt með Snagit 9 fyrir alla þá sem þurfa að vinna mikið með skjámyndir. Grunnvirkni hugbúnaðarins er svipuð og áður en nýtt notendaviðmót auðveldar vinnslu og einfaldar aðgengi að skipunum. Ég er sérstaklega hrifinn af nýja myndasafninu og flokkunarmöguleikunum þar. Hægt er að sækja prufuútgáfu af Snagit 9 á vef Techsmith en verð á henni er $49 þegar þetta er skrifað. Núverandi Snagit notendur geta uppfært fyrir $19 sem verður að teljast mjög sanngjarnt fyrir svo góðan hugbúnað.
Hér má svo finna yfirlit yfir skjáskotsforrit á wikivef Fjölbrautaskólans í Breiðholti


