Úr einu í annað

Skrifað 26. June 2008
Flokkur: hugbúnaður
Ein athugasemd frá lesendum

Ég tel mig nokkuð fastheldinn á hugbúnað. Þegar ég loks hef ratað á hið eina rétta forrit þarf töluvert átak til að ég söðli um og taki upp aðra lausn og er ég þó nýjungagjarn að endemum. Á þessari reglu eru hins vegar nokkrar mikilvægar undantekningar.

Netscape > Internet Explorer > Firefox
Vefskoðarinn er án efa það verkfæri sem ég nota hvað mest frá degi til dags. Fyrsti vefskoðarinn sem ég kynntist var hinn fornfrægi og þá allsráðandi Netscape og þjónaði hann hlutverki sínu með miklum ágætum þangað til ég kynntist Internet Explorer 4.0 sem gefin var út af Microsoft síðla árs 1997. IE 4 var tæknilega fullkomnari en Netscape og uppsetning hans þar að auki einfaldari þar sem hún var tengd Windows stýrikerfinu með sína yfirburðarstöðu á markaði. Internet Explorer 4 var vafrinn sem snéri vafrastríðinu illræmda Microsoft í hag.

Mozilla Firefox vafrinn er skilgetið afkvæmi Netscape, en útgáfa 1.0 af Firefox var opinberuð þann 9. nóvember 2004. Ég skipti yfir í Firefox ári síðar og sé ekki eftir því. Firefox er mun skemmtilegri vafri að mínu mati, notendavænn og hraðvirkur. Hann fylgir stöðlum mun betur en Internet Explorer og er í stöðugri þróun. Síðast en ekki síst þá er Firefox opinn hugbúnaður.

Bloglines > Google Reader
Ég fylgist með fjöldanum öllum af vefskrifum á hverju degi og nota til þess svo kallaðan RSS lesara. RSS lesarar veiða upplýsingar um nýjustu færslur úr RSS skrám og birta á notendavænu sniði. Bloglines var um langt skeið einn allra besti netbundni RSS lesarinn og ég kunni afar vel við þá þjónustu. Það var ekki fyrr en útgáfa 2 af Google Reader kom fram á sjónarsviðið að Bloglines varð nánast á einni nóttu frekar gamaldags og óspennandi.

Microsoft Outlook > Gmail
Tölvupóstur hefur frá upphafi verið einn mikilvægasti þáttur netsamskipta hjá mér líkt og flestum öðrum. Þrátt fyrir að eitthvað hafi dregið úr mikilvægi hans á síðustu árum skiptir það mig miklu máli að geta nálgast tölvupóstinn minn á öruggan og einfaldan hátt hvar og hvenær sem er.

Ég nota ennþá Outlook vegna vinnunnar en hef löngu skipt yfir í Gmail tölvupóstinn frá Google fyrir allan persónulegan póst og er mjög sáttur við þá lausn.

Ég held að skólar ættu að athuga betur þann möguleika að færa sig yfir í Gmail, t.d. framhalds- eða háskólar sem bjóða nemendum upp á netföng. Lesið t.d. um hvað er að gerast í Ástralíu um þessar mundir þar sem skólar eru í stórum stíl að innleiða Gmail á kostnað Outlook. Sjálfsagt að geta þess að ekki eru allir par sáttir við Gmail.

Frontpage > Dreamweaver
Ég man hversu mikil bylting það þótti þegar Microsoft markaðsetti Frontpage hugbúnaðinn sem fyrirtækið keypti af Vermeer Technologies Incorporated árið 1996. Loksins var komið verkfæri fyrir hinn venjulega notanda til að setja saman vandaða vefi á tiltölulega einfaldan hátt. Í það minnsta ef miðað er við hinn valkostinn að kóða öll herlegheitin í höndunum og helst í notepad eða sem allra fátæklegustum ritli.

Eins og við mátti búast báru ekki allir Frontpage góða söguna og einn helsti þrætuvaldur þeirra sem töldu sig hafa vit á þessum hlutum var sú hvimleiða staðreynd að Frontpage gaf frá sér verulega sóðalegan HTML kóða og þótti það og þykir hið versta mál. Ólíkt Frontpage þá var Dreamweaver snðið að reynslumeiri notendahópi enda nokkuð erfiðara að ná tökum á því verkfæri fyrir byrjendur. Fyrirhöfnin var þó vel þess virði því himinn og haf skilur að Frontpage og Dreamweaver að hvað gæði varðar. Nú er Frontpage reyndar allur og er það vel. Vefsmíðar eru reyndar æ meira að færast yfir á vettvang fagmanna og sjaldgæft orðið að almennir notendur haldi út vefjum handvirkt með tólum á við Dreamweaver. Sjálfur finn ég að einfaldur textaritill er líklegast meira notaður á mínu heimili en fullbúin tól til flókinna vefsmíða.

TypePad > Wordpress
Eftir að ég tók þá ákvörðun að stofna og reka minn eigin hófst leit að heppilegu vefumsjónarkerfi. Fyrir valinu varð TypePad, hýst lausn sem byggði á MoveableType kerfinu frá Six Apart fyrirtækinu. Ég notaðist við TypePad í nokkra mánuði en þjónusta Six Apart var slík að ekki varð við unað. Ég fór því aftur á stúfana og nú ákvað ég að láta reyna á Wordpress lausnina, sem er opinn hugbúnaður. Af hagkvæmnisástæðum ákvað ég að hýsa vefinn erlendis og festi mér einnig .net lén þar sem einokunarstarfsemin í kringum .is lénin er óskemmtileg svo ég kveði ekki sterkara að orði.

Í stuttu máli sagt þá er ég afskaplega sáttur við Wordpress og tel þar á ferðinni eitt allra besta vefumsjónarkerfið/bloggkerfið á markaðinum í dag. Ekki sakar verðið heldur og svo er kostur einnig að kerfið hefur verið þýtt yfir á íslensku. Wordpress hefur enda notið fádæma vinsælda og svo mikilla að Six Apart hefur sem mótleik gefið út opna útgáfu af Moveable Type. Sú leikflétta hefur enn sem komið er skilað litlum sem engum árangri og hvað mig varðar þá er enginn tilgangur í því að skipta yfir.

Það væri virkilega gaman að heyra frá ykkur lesendum. Hvaða umskipti hafa markverðust orðið á ykkar tölvuferli?


Tengt efni

1 athugasemd við “Úr einu í annað”

  1. Ella Jóna skrifar:

    Jú jú
    Nokkuð hef ég nú fetað í þín fótspor og má segja að flestar þessar lausnir eru hrein snilld svo ekki sé meira sagt. Ég er búin að vera að skoða Google síðuna núna undanfarið og er þar fullt fullt af tækjum og tólum sem vert er að skoða.
    Og eins og þú segir ekki sakar verðið á opnum hugbúnaði :-)

    kveðja Ella Jóna

Skráðu athugasemd

Dagatalið – verkefni í ritvinnslu

    Af sama tagi

    Nýlega lesið

    Eldra efni