Þann 9. ágúst getur þú lesið dagbækur George Orwell á Netinu, eina færslu á dag, nákvæmlega 70 árum eftir að þær voru ritaðar. Sniðug hugmynd. [Translate]
Geimferðarstofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur í samstarfi við Internet Archive opnað vefinn nasaimages.org sem hefur að geyma yfirgripsmikið safn ljósmynda og mynd- og hljóðbúta úr safni NASA. [Translate]
Touch Typing nefnist einfaldur, netbundinn hugbúnaður (flash) sem ég nota gjarnan með nemendum mínum, þeim sem þurfa á að halda að æfa sig í fingrasetningu og vélritun. Eins ágætt og forritið er þá hefur það einn stóran galla, það vantar tilfinnanlega íslenskt lyklaborð. Í von um að bæta úr þessu skrifaði ég höfundinum Ezra Molkho ...
Ívar Örn Reynisson skrifar um nám og kennslu í Menntaskóla Borgarfjarðar í vefritið Hugsandi. [Translate]
Á kynningardegi Námsgagnastofnunar sem haldinn verður í Árbæjarskóla miðvikudaginn 20. ágúst nk. mun ég opinbera nýja íslenska handbók í Sketchup teiknihugbúnaðinum magnaða frá Google. Handbókin verður aðgengileg án endurgjalds á vef Námsgagnastofnunar á pdf sniði. [Translate]
Sir Ken Robinson tekur á móti Benjamin Franklin viðurkenningu Royal Society for the Arts. Frábær fyrirlestur eins og hans er von og vísa. [Translate]
BECTA (British Educational Communications and Technology Agency) hefur að beiðni bresku ríkisstjórnarinnar gefið út ritið “Harnessing Technology: Next Generation Learning” sem er endurskoðuð og uppfærð stefnumótun enskra stjórnvalda um hagnýtingu upplýsingatækninnar í skólastarfi til næstu sex ára. [Translate]
Júlí/ágúst hefti Educause Review er komið út. Áhugavert eins og alltaf. [Translate]
Athugasemdir