Ný stefnumótun Englendinga um upplýsingatækni í námi og kennslu
BECTA (British Educational Communications and Technology Agency) hefur að beiðni bresku ríkisstjórnarinnar gefið út ritið “Harnessing Technology: Next Generation Learning” sem er endurskoðuð og uppfærð stefnumótun enskra stjórnvalda um hagnýtingu upplýsingatækninnar í skólastarfi til næstu sex ára.
Ritið er framhald af skýrslunni “Harnessing Technology: Transforming Learning and Children’s Services” sem var gefin út árið 2005 og lagði traustan grunn að markvissri notkun upplýsingatækninnar innan enska skólakerfisins. Nýja stefnumótunin byggir á því starfi sem þar var mótað og boðar jafnframt næstu skref.
Eins og sjá má á skýringarmyndinni (bls. 17 í skjalinu) hér að ofan skiptir Becta þróun á upplýsingatækni í skólastarfi í tvo fasa. Í fasa 1 var áherslan lögð þætti eins og vélbúnað og tengingar og innleiðingu á tækni í hefðbundið skólastarf og kennslu. Í öðrum fasa eru áhersluatriðin hins vegar aðgengi og stuðningur óháður stað og stund, einstaklingsmiðað nám og þjónusta og virðisaukandi áhrif tækninnar í þágu allra nemenda.
Í endurskoðaðri stefnu BECTA er nemandinn í fyrirrúmi. Tæknin er ekki nýtt tækninnar vegna. Nemendum verður gert kleift að öðlast meiri stjórn á eigin námi með auknu aðgengi að námsgögnum og betri, einstaklingsmiðaðri stuðningi og kennslu. Í stefnunni er sérstaklega tekið fram að svo víðfemar breytingar náist einungis með samstarfi og miklum samtakamætti allra viðkomandi aðila. Hér má sjá líkan að framtíðarskipaninu eins og það er sett fram í stefnunni.
Það er forvitnilegt að lesa hvernig ensk stjórnvöld ætla að tryggja að framtíðarsýn stefnunnar nái fram að ganga og þá sérstaklega hversu mikilvægur þáttur samstarf og stuðningur við leiðtoga í skólastarfi er. Ég gríp hér niður í textanum (bls. 25).
Leaders in all sectors need to be involved in making this happen, and we will invite them to take on roles as ‘Technology Leadership Champions’ to enable this. This network will be open to leaders from schools, colleges, providers, universities, local and national government and industry, and will build a shared understanding of how technology can help address their problems and priorities.
Hér má finna greinilega samsvörun við nýútgefna stefnu íslenskra stjórnvalda þar sem kynntir eru til sögunnar svonefndir UT-leiðtogar. Hlutverk leiðtoganna ensku virðist að vísu vera mun umfangsmeira en þeirra sem íslensk stjórnvöld minnast stuttlega á í Netríkinu Ísland og eiga samkvæmt orðanna hljóman eiga einungis að starfa á vettvangi grunn- og framhaldsskóla.
Hér er annar áhugaverður textabútur.
In addition to Technology Leadership Champions described earlier, key aspects of this work will ensure that the best examples of technology supported learning are showcased among education leaders and influencers, and gather and disseminate evidence of technology’s role in supporting improved services.
(bls. 37).
Þetta er mikilvægur þáttur að mínu mati, þ.e. að kennarar og skólafólk allt hafi kost á því að kynna sér vel heppnuð og spennandi verkefni á vettvangi upplýsingatækninnar. Ég hugsa til UT ráðstefnanna þegar ég les þennan texta, en auðvitað má hugsa sér annan og jafnvel netbundnari vettvang til að kynna það sem vel er gert. Menntagátt kannski? Jafnvel eitthvað í anda Peel hugmyndafræðinnar.
Bretar eru vafalítið mjög framarlega í notkun á upplýsingatækni í námi og kennslu og nýja stefnan endurspeglar áframhaldandi metnað á þessum vettvangi. Ég er sannfærður um að þarna má finna ýmislegt sem kemur íslensku skólakerfi að góðu gagni og mæli hiklaust með því að ráðamenn, skólastjórnendur og kennarar kynni sér þetta plagg (eða 15 bls. samantektina) í góðu tómi.
ps.
Ég tók eftir því að Bretar ætla að boða til spennandi fundar í janúar á næsta ári þar sem ætlunin er að safna saman ráðherrum, embættismönnum og notendum sem þykja leiðandi á sviði upplýsintækni í skólastarfi.
The UK education and skills reform agenda provides the immediate context for the Harnessing Technology Strategy, but the wider global setting is crucial. To help position the strategy within this broader context, we are holding a World Technology in Education Forum in January 2009, which will be attended by ministers, officials and leading practitioners from the UK and abroad. A key aim of this event is to learn from international experience and refine strategy in the UK, as well as promoting UK expertise and helping others identify how to progress in the use of technology in education.
Það verður forvitnilegt að heyra meira af þeirri samkomu.

